Ferill 193. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 193 . mál.
213. Tillaga til þingsálykt
unarum afnám misréttis gagnvart samkynhneigðu fólki.
Flm.: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Össur Skarphéðinsson, Ólafur Þ. Þórðarson,
Guðrún Helgadóttir, Einar K. Guðfinnsson.
Alþingi ályktar að lýsa yfir vilja sínum til að tryggja að misrétti gagnvart samkynhneigðu fólki eigi sér ekki stað hér á landi. Til þess að svo megi verða, sbr. ályktanir Evrópuráðsins 1. október 1981 og Norðurlandaráðs 1. mars 1984 sem báðar fjalla um afnám misréttis gagnvart samkynhneigðu fólki, ályktar Alþingi að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til þess að kanna stöðu samkynhneigðs fólks á Íslandi. Nefndin skal skipuð fulltrúum dómsmálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og hagsmunasamtaka samkynhneigðs fólks og skal hún kanna lagalega, menningarlega og félagslega stöðu þess og gera tillögur um úrbætur og nauðsynlegar aðgerðir til þess að misrétti gagnvart samkynhneigðu fólki hverfi hér á landi.
Greinargerð.
Þessi tillaga var áður flutt á 108. löggjafarþingi en náði þá ekki fram að ganga. Flutningsmenn voru þá Kristín S. Kvaran, Guðrún Agnarsdóttir, Helgi Seljan og Ólafur Þ. Þórðarson. Hún er nú endurflutt svo til óbreytt.
Í okkar heimshluta hafa þjóðfélagsbreytingar síðustu áratuga m.a. falið í sér vaxandi virðingu fyrir einstaklingnum og rétti hans, sem og aukinn skilning milli þjóðfélagshópa og virðingu fyrir rétti þeirra hvers um sig. Má raunar segja að það sé og eigi að vera kjarninn í viðleitninni til að móta samfélagið svo að það verði samfélag allra manna.
Þegar nefna skal dæmi þessa er augljósust hér á landi umræðan um jafnan rétt karla og kvenna og viðleitni almennings og félagasamtaka, sem og viljayfirlýsingar og löggjöf Alþingis, til þess að tryggja afnám misréttis vegna kynferðis. Sami vilji liggur að baki þegar þjóðir setja sér að útrýma misrétti sem byggist á litarhætti manna. Einnig ákveða þjóðfélög að réttur þjóðabrota, trúarbragðahópa og aldurshópa skuli virtur og svo má áfram telja.
Misrétti vegna kynhneigðar hefur viðgengist öldum saman í samfélögum vestrænnar menningar. Þetta á og mjög við um Ísland. Þess gætir í löggjöf með tvennum hætti, annars vegar með því að lagaákvæði meina beinlínis samkynhneigðum rétt sem gagnkynhneigðum er ekki meinaður og hins vegar með því að lagaákvæði, sem veita tiltekinn rétt, ná til gagnkynhneigðra en ekki samkynhneigðra.
Auk lagalegs misréttis býr samkynhneigt fólk við menningarlegt og félagslegt misrétti. Menningarlegt misrétti er m.a. fólgið í misnotkun tungunnar til þess að sýna samkynhneigðu fólki virðingarleysi með fjandsamlegu orðafari, sem og í því að í listum og öðru menningarstarfi er tilvist samkynhneigðs fólks hunsuð og hjúpuð þögninni. Félagslegs misréttis gagnvart samkynhneigðu fólki sem einstaklingum og sem hópi gætir á öllum sviðum þjóðlífsins og er vitað um fjöldamörg dæmi þess.
Aðstaða samkynhneigðs fólks til þess að berjast sjálft fyrir jafnrétti sínu er miklu lakari en annarra þjóðfélagshópa. Konur eiga þess ekki kost að leyna kynferði sínu til þess að komast hjá því að verða fyrir misrétti og blökkumenn geta ekki leynt litarhætti sínum. En samkynhneigt fólk á þess kost að afneita kynhneigð sinni til þess að komast hjá misrétti og hið menningarlega misrétti veldur því að afar erfitt er fyrir homma eða lesbíu að öðlast þá sjálfsvirðingu sem þarf til að krefjast réttar síns. Hið félagslega misrétti gengur svo nærri sérhverjum einstaklingi sem fyrir því verður að yfirgnæfandi meiri hluti samkynhneigðs fólks kýs að fórna rétti sínum til fullrar aðildar að samfélaginu á jafnréttisgrundvelli fremur en að beita sér gegn misréttinu. Hér er því kominn vítahringur. Samkynhneigður einstaklingur getur ekki krafist réttar síns nema hann geri grein fyrir máli sínu, en hann getur ekki gert grein fyrir máli sínu vegna réttleysis síns. Að fá ekki að vera maður sjálfur með fullum rétti og virðingu leiðir til mikillar óhamingju. Það er hlutverk þjóðfélagsins alls að rjúfa þennan vítahring.
Sem betur fer hafa augu stjórnmálamanna víða um lönd opnast á undanförnum árum fyrir því hlutverki sem þeir þurfa að gegna hér. Meðal norrænna þjóða riðu Norðmenn á vaðið þegar Stórþingið jók við ákvæðum í norsk hegningarlög árið 1981 sem kveða á um refsingu gagnvart þeim sem blása til andúðar á samkynhneigðu fólki á opinberum vettvangi eða neita samkynhneigðu fólki um vöru eða þjónustu sem almenningi er boðin í atvinnuskyni. Sams konar lagasetningar (antidiskriminationslov) tóku nokkrum árum síðar gildi í Danmörku og Svíþjóð. Að undangengnu starfi þingkjörinnar nefndar gekk í gildi ný sambúðarlöggjöf í Svíþjóð 1988 sem kveður á um jafnan rétt fólks í sambúð við þá sem lifa í hjónabandi hvað varðar erfðamál, skattamál og skiptingu eigna við skilnað. Sérstaklega er tekið fram í löggjöfinni að þessi réttur gildi líka um sambúð samkynhneigðra. Árið 1989 gengu í gildi lög í Danmörku um skráða sambúð samkynhneigðra og samkvæmt þeim njóta þeir sama hjúskaparréttar og aðrir þegnar ef undan er skilinn rétturinn til að ættleiða börn. Svo má lengi telja, en aðeins skal nefnt að í Hollandi, Frakklandi og víða í Bandaríkjunum hefur mikill árangur náðst með því að banna með lögum misrétti vegna kynhneigðar.
Flutningsmenn þessarar þingsályktunartillögu vilja ekki una því að á Íslandi líðist misrétti sem byggist á kynhneigð og telja því nauðsynlegt að verða við ályktunum Evrópuráðsins 1. október 1981 og Norðurlandaráðs 1. mars 1984 sem báðar fjalla um afnám misréttis gagnvart samkynhneigðu fólki. Mikilvægi þessa verkefnis hefur af hálfu stjórnmálamanna verið rækilega undirstrikað með þessum ályktunum.