Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 195 . mál.


215. Tillaga til þingsályktunar



um tímabundnar ráðstafanir í sjávarútvegsmálum.

Flm.: Jóhann Ársælsson, Steingrímur J. Sigfússon, Kristinn H. Gunnarsson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni, í samráði við sjávarútvegsnefnd Alþingis, að undirbúa ráðstafanir til að draga úr óvissu í sjávarútvegsmálum á árinu 1992 eða þar til lokið er endurskoðun laga um stjórn fiskveiða.
     Í þessu skyni verði eftirfarandi ráðstafanir athugaðar sérstaklega:
—    að draga markvisst úr flutningi veiðiheimilda milli byggðarlaga með kvótaskerðingu eða öðrum áhrifaríkum hætti,
—    að stöðva frekari flutning fiskvinnslunnar út á sjó (fjölgun frystitogara),
—    að lýsa yfir að yfir að tvöföldun línuaflans í fjóra mánuði á ári verði áfram í gildi,
—    að lýsa yfir að ekki sé stefnt að afnámi krókaveiðileyfa undir 6 tonna markinu,
—    að stemma stigu við flutningi veiðiheimilda frá minni bátum og trillum á stærri skip,
—    að taka upp þá reglu, til að hindra að afla, einkum smáfiski, sé hent í sjóinn, að skip megi landa slíkum afla utan kvóta, þannig að útgerðin fái metið kostnaðarverð til sín en afgangurinn sé fénýttur, t.d. í þyrlukaupasjóð,
—    að fallið verði frá áformum um að fénýta Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins og allar ráðstafanir, sem gerðar verða á árinu 1992, verði við það miðaðar að tryggja stöðugleika á meðan endurskoðun laganna um stjórn fiskveiða stendur yfir.

Greinargerð.


     Endurskoðun laga um stjórn fiskveiða stendur nú yfir og skal vera lokið fyrir áramótin 1992–1993. Mikið umrót og óvissuástand hefur skapast vegna þeirra laga sem nú gilda um stjórn fiskveiða og óvissunnar um hvort þau muni breytast og hvernig. Ofan á þetta bætist gríðarlegur rekstrarvandi í sjávarútveginum og er nú þannig komið að fjölmörg fyrirtæki riða á barmi gjaldþrots eða eru nú þegar gjaldþrota.
     Heimaaðilar og sveitarfélög hafa víða enga möguleika á að tryggja að veiðiheimildir verði ekki seldar í burtu. Veiðiheimildir flytjast einnig stjórnlaust milli skipagerða án tillits til atvinnusjónarmiða og þjóðhagslegrar hagkvæmni. Veruleg hætta er á miklum atvinnumissi vegna þessa.
     Auk almennra og sértækra ráðstafana til að styrkja atvinnugreinina í heild er nauðsynlegt að koma í veg fyrir að margvísleg vandamál skapist þann tíma sem tekur að endurskoða lögin um stjórn fiskveiða.
     Draga mætti tímabundið úr flutningi veiðiheimilda milli byggðarlaga með því að beita kvótaskerðingum. Þann kvóta, sem þannig félli til, mætti setja í Hagræðingarsjóð til að styrkja byggðarlög sem lenda í erfiðleikum.
     Brýna nauðsyn ber nú til að stöðva flutning fiskvinnslunnar út á sjó, þ.e. fjölgun frystitogara. Þann tíma sem vinnst þarf fiskvinnslan í landi og útgerð tengd henni að nota til að endurmeta stöðu sína og búa sig undir að takast á við kröfuna um ferskara hráefni.
     Mörg byggðarlög, sem byggja afkomu sína á bátaútgerð, eru nú í mikilli óvissu vegna þess þrýstings sem forráðamenn útvegsmanna hafa beitt til að fá tvöföldunina á línuaflanum afnumda. Þess vegna er nauðsynlegt að skera úr í því máli með tilliti til byggðasjónarmiða. Sama má segja um krókaveiðileyfin á bátum undir 6 tonna markinu. Ýmis af minnstu byggðarlögunum, sem byggja afkomu sína á smábátaútgerð, munu hreinlega leggjast af ef kvóta verður úthlutað á báta undir 6 tonna markinu eins og gert er ráð fyrir í lögunum um stjórn fiskveiða. Þá er það kapp, sem menn leggja nú á að reyna vinna sér inn kvóta á þessa báta, mjög hættulegt fyrir öryggi sjómannanna og forkastanlegt að stjórnvöld stuðli að glannalegri sjósókn með þessum hætti. Flutningur aflaheimilda frá smábátum til stærri skipa hefur verið mikill og mun hafa slæm áhrif í atvinnulegu tilliti, sérstaklega í smærri fiskiþorpunum á landsbyggðinni. Þá verður ekki litið fram hjá þeirri staðreynd að með þeirri tilfærslu veiðiheimilda, sem er í gangi og hefur verið undanfarið í stórum stíl frá bátum yfir á togara, er sóknin að færast frá stærri fiski yfir í smærri, sbr. meðalþyngd á fiski sem króka- og netaveiði skilar á móti meðalþyngd hjá stærri togskipum. Einnig er ástæða til að ætla að sóknarkostnaður sé minni hjá bátum en togurum og þess vegna að mörgu leyti þjóðhagslega óhagkvæmt að þetta gerist. Því virðist einsýnt að loka beri fyrir flutning aflaheimilda frá þessum bátum til togaranna.
     Vegna þess afla sem talið er að fleygt sé í sjóinn er hér lagt til að sú tilraun verði gerð að gefa mönnum kost á að koma með allan afla að landi sem kemur í veiðarfærin. Sá kostur verði í boði að skip geti landað aflanum utan kvóta. Aflinn verði seldur, útgerðin fái metið kostnaðarverð fyrir hann en mismunurinn verði síðan nýttur t.d. í þyrlukaupasjóð.
     Þá er lagt til að menn leggi á hilluna öll áform um að fénýta Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins og að allar ráðstafanir í sjávarútvegsmálum, sem gerðar verði á árinu 1992, verði við það miðaðar að tryggja sem best stöðugleika í greininni meðan endurskoðun laganna um stjórn fiskveiða stendur yfir.