Ferill 44. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 44 . mál.


221. Breytingartillaga



við frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Á eftir 8. gr. komi ný grein er orðist svo:
     Að höfðu samráði við viðskiptaráðherra er fjármálaráðherra heimilt, í því skyni að tryggja áframhaldandi verslunarþjónustu á svæðum þar sem verslun stendur höllum fæti, að lækka eða fella niður í einstökum skattumdæmum sérstakan eignarskatt samkvæmt lögum þessum.