Ferill 202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 202 . mál.


225. Frumvarp til laga



um stofnun hlutafélags um Síldarverksmiðjur ríkisins.

(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991.)



1. gr.


    Ríkisstjórnin skal stofna hlutafélag sem tekur við rekstri Síldarverksmiðja ríkisins. Ríkisstjórninni er í því skyni heimilt að leggja hlutafélaginu til eignir Síldarverksmiðja ríkisins, þar með taldar fasteignir, sem stofnfé. Mat skal fara fram á eignum og skuldum verksmiðjanna til viðmiðunar um upphæð hlutafjár og eiginfjárstöðu nýja hlutafélagsins.

2. gr.


    Tilgangur félagsins er að framleiða og selja fiskimjöl og lýsi, svo og önnur skyld starfsemi, samkvæmt nánari ákvæðum í samþykktum félagsins. Í því skyni er félaginu heimilt að gerast eignaraðili að stofnunum eða öðrum félögum, þar á meðal hlutafélögum.
     Heimilt er að breyta tilgangi félagsins á hluthafafundi.

3. gr.


    Ríkissjóður er eigandi allra hlutabréfa félagsins við stofnun þess. Sjávarútvegsráðherra fer með eignarhlut ríkisins í félaginu. Heimilt er að selja öll hlutabréfin í félaginu eða hluta þeirra samkvæmt nánari ákvörðun hluthafa.

4. gr.


    Ákvæði 2. mgr. 3. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög, með áorðnum breytingum, gilda ekki um tölu stofnenda í hlutafélaginu. Ákvæði 1. mgr. 17. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 115. gr. sömu laga gilda ekki um tölu hluthafa. Að öðru leyti skulu ákvæði hlutafélagalaga gilda um félagið.

5. gr.


    Hlutabréf í félaginu, útgefin í tengslum við stofnun þess, skulu undanþegin stimpilgjöldum.

6. gr.


    Stofnfund nýja hlutafélagsins skal halda fyrir lok aprílmánaðar 1992 og skal félagið taka til starfa 1. maí 1992. Á stofnfundinum skal leggja fram drög að stofnsamningi og samþykktum fyrir félagið.

7. gr.


    Fastráðnir starfsmenn Síldarverksmiðja ríkisins skulu hafa rétt til starfa hjá nýja hlutafélaginu við stofnun þess og skal þeim boðin sambærileg staða hjá félaginu og þeir gegndu áður hjá verksmiðjunum. Ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, á því ekki við um þá starfsmenn.

8. gr.


    Sjávarútvegsráðherra annast fyrir hönd ríkisstjórnarinnar undirbúning að stofnun félagsins, þar með talið skipan matsnefndar, sbr. 1. gr.

9. gr.


    Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að yfirtaka skuldir Síldarverksmiðja ríkisins að fjárhæð allt að 500.000 þús. kr.

10. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Lög nr. 1/1938, um Síldarverksmiðjur ríkisins, með síðari breytingum, falla úr gildi 1. maí 1992.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Á árum fyrri heimstyrjaldar jókst síldarútgerð Íslendinga mjög mikið og náði hámarki árið 1919. Mikið verðfall á saltsíldarframleiðslunni það sama ár olli miklu tjóni hjá íslenskum síldarútvegsmönnum og urðu margir þeirra gjaldþrota. Bestu aflaárin á síldveiðum urðu þá mestu tapárin því að á þessum árum var saltað meira af síld en markaðurinn þoldi. Mestur hluti aflans var þá saltaður í tunnur því að aflinn var svo mikill að mikið vantaði á að síldarbræðslurnar í landinu gætu tekið við aflanum. Flestar síldarbræðslur voru þá í eigu erlendra aðila sem réðu því einar síldarverðinu. Verðið, sem verksmiðjurnar buðu, var oft svo lágt að Íslendingar sáu sér engan veginn fært að gera skip út á síld upp á þau býti. Þetta freistaði manna til að salta mestan hluta af afla skipa sinna til útflutnings með áðurgreindum afleiðingum — að fjöldi síldarútgerðarmanna varð gjaldþrota — og jókst sókn erlendra fiskimanna til veiða hér við land í framhaldi þessa. Við þessu var brugðist af Alþingi með setningu laga nr. 33/1922, um rétt til fiskiveiða í landhelgi. Í lögunum var útlendingum bannað „að hafast við við land eða í höfn, til þess að reka þaðan fiskiveiðar utan landhelgi.“ Á þeim tíma var það talið einstökum mönnum eða félögum ofvaxið að leggja fram nægilegt fé til að koma upp síldarverksmiðju. Fyrstu lög um síldarverksmiðjur í eigu ríkisins voru sett á árinu 1928. Fyrsta verksmiðja Síldarverksmiðja ríkisins tók til starfa á Siglufirði á árinu 1930. Síðan risu verksmiðjur félagsins hver á fætur annarri. Á árinu 1947 starfrækti SR verksmiðjur á Siglufirði, Húsavík, Skagaströnd og Raufarhöfn og námu heildarafköst verksmiðjanna um 5.000 tonnum á sólarhring, en afköst annarra verksmiðja á Norður- og Austurlandi námu um 5.700 tonnum á sólarhring. Núgildandi lög um Síldarverksmiðjur ríkisins hafa staðið nánast óbreytt frá árinu 1938.
     Síldarverksmiðjur ríkisins reka nú verksmiðjur á fimm stöðum á landinu, Skagaströnd, Siglufirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði og Reyðarfirði auk vélaverkstæðis á Siglufirði. Á Skagaströnd er eingöngu unninn fiskúrgangur. Í hinum verksmiðjunum hefur um árabil aðallega verið framleitt mjöl og lýsi úr loðnu. Afkastageta þessara fjögurra verksmiðja er um 3.550 tonn af loðnu á sólarhring, sem er talið vera tæplega 30% af afkastagetunni í landinu, sjá fskj. I.
     Á vinnsluárinu 1988–1989 tóku Síldarverksmiðjur ríkisins á móti 222.544 tonnum af loðnu eða 26% af því magni sem landað var hjá innlendum bræðslum. Á vinnsluárinu 1989–1990 var landað 220.159 tonnum hjá SR sem var um 33% af heildarafla og á vinnsluárinu 1990–1991 var landað 38.241 tonni hjá SR sem var um 13,5% af heildarafla, sjá fskj. II.
     Á árinu 1990 varð 157,3 m.kr. tap af rekstri Síldarverksmiðja ríkisins og 159,8 m.kr. tap árið 1989, samanborið við 39,4 m.kr. hagnað árið 1988. Ástæður tapsins má fyrst og fremst rekja til loðnubrests á haustvertíð 1989 og 1990, sjá fskj. III, auk þungbærra fjármagnsgjalda vegna mikilla fjárfestinga og lántöku þeirra vegna. Bókfært verð eigna í árslok 1990 nam 1.561 m.kr. (1.135 m.kr. 1989) og skuldir voru 1.184 m.kr. (647 m.kr. 1989). Bókfært eigið fé var því um 377 m.kr. 31. desember 1990 (488 m.kr. 1989). Milliuppgjör frá 30. júni sl. sýnir áframhaldandi taprekstur. Tap fyrstu sex mánuði ársins 1991 er talið vera 169 m.kr. Á sama tíma rýrnaði eigið fé félagsins um 154 m.kr., sjá fskj. IV.
     Sjávarútvegsráðherra, Þorsteinn Pálsson, skipaði 19. júlí 1991 nefnd til að vinna að undirbúningi að breytingum á rekstrarformi Síldarverksmiðja ríkisins. Í þeirri nefnd áttu sæti: Eggert Hauksson viðskiptafræðingur, formaður, Óttar Yngvason hæstarréttarlögmaður og Valbjörn Steingrímsson rekstrarfræðingur. Arndís Steinþórsdóttir, viðskiptafræðingur og deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, starfaði með nefndinni.
     Nefndarmenn voru sammála um að leggja til að rekstrarformi Síldarverksmiðja ríkisins yrði breytt í hlutafélag. Frumvarp það, sem hér er lagt fram, er í meginatriðum í samræmi við niðurstöðu nefndarinnar.
     Hér á landi, eins og í flestum löndum hins vestræna heims, hefur löggjafinn skilgreint starfsemi hlutafélaga vandlega og sett ítarlegar reglur þar að lútandi. Í lögum um hlutafélög er kveðið nákvæmlega á um starfssvið stjórnar, framkvæmdastjórnar og aðalfundar. Þar eru einnig ákvæði sem vernda rétt minnihlutaeigenda. Hlutafélagaformið er því sérstaklega hentugt félagsform þegar ríkið óskar eftir samstarfi við aðra aðila um atvinnurekstur.
     Þeirri skoðun vex nú mjög fylgi bæði hér á landi og erlendis að eðlilegt sé að ríkið dragi sem mest úr þeirri atvinnustarfsemi sem er í beinni samkeppni við almennan atvinnurekstur. Jafnframt er talið við hæfi að þau opinberu fyrirtæki, sem þannig háttar til um, séu rekin í formi hlutafélaga. Með því er öllum þeim aðilum, er standa að atvinnurekstri í sömu grein, búin sambærileg starfsskilyrði hvort sem fyrirtækin eru í eigu einstaklings eða ríkis. Ábyrgð eigenda takmarkast auk þess við framlagt hlutafé. Ríkissjóður ábyrgist ekki skuldir sem Síldarverksmiðjur ríkisins hafa stofnað til nema í þeim tilvikum að Alþingi hafi sérstaklega ákveðið með lögum að ríkissjóður ábyrgðist tilteknar lántökur. Telja verður eðlilegt að fyrirtæki eins og Síldarverksmiðjur ríkisins, sem er í eigu ríkisins og starfar á samkeppnismarkaði, búi við sama rekstrarform og samkeppnisaðilarnir. Þær fiskimjölsverksmiðjur, sem eru í rekstri á Íslandi, starfa langflestar innan ramma hlutafélagalöggjafarinnar.
     Ýmis önnur veigamikil rök hníga að því að nýta hlutafélagaformið fyrir ríkisfyrirtæki. Kemur þar margt til. Reksturinn verður sveigjanlegri. Stjórn og framkvæmdastjórn geta gert grein fyrir gerðum sínum og fyrirhuguðum aðgerðum á aðalfundi eða hluthafafundi og fengið til þess stuðning eða gagnrýni eigenda. Vilji stjórn ráðast í fjárfrekar framkvæmdir og ríkið vill ekki leggja fram aukið hlutafé er unnt að leita að nýju fjármagni með hlutafjáraukningu og nýjum hluthöfum sem kæmu inn með nýtt hlutafé.
     Verði frumvarp þetta að lögum munu eftirtaldir þættir breytast í rekstri Síldarverksmiðja ríkisins:
    Fyrirtækið verður hlutafélag sem í upphafi verður í eigu ríkissjóðs. Almenn lög um hlutafélög gilda um fyrirtækið. Gert er ráð fyrir að fram fari nákvæmt mat á eignum og skuldum Síldarverksmiðja ríkisins til þess að nota sem viðmiðun við ákvörðun hlutafjár nýja hlutafélagsins. Heimilt verður að selja öðrum öll hlutabréf eða hluta þeirra í félaginu. Einnig verður félaginu heimilt að selja einstakar fasteignir þess eða rekstrareiningar.
    Stjórn fyrirtækisins verður kosin á aðalfundi.
    Ábyrgð og völd stjórnenda vaxa. Þá verður skilvirkara samband á milli eigenda og stjórnenda.
    Fyrirtækið hefur enga sérstöðu fram yfir aðra samkeppnisaðila í landinu og keppir á jafnréttisgrunni við þá.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Með þessari grein er ríkisstjórninni gert að stofna hlutafélag sem taki við rekstri Síldarverksmiðja ríkisins. Ríkisstjórninni er í því skyni heimilað að leggja hlutafélaginu til allar eignir Síldarverksmiðja ríkisins, þar með taldar núverandi fasteignir SR sem stofnfé. Nauðsynlegt er að fram fari mat á eignum og skuldum SR sem notað verði til viðmiðunar við ákvörðun um upphæð hlutafjár og eiginfjárstöðu nýja hlutafélagsins. Kostnaður við matið telst til stofnkostnaðar hlutafélagsins og greiðist af félaginu. Það yrði hlutverk sjávarútvegsráðherrra að kveðja til aðila til að framkvæma þetta mat.

Um 2. gr.


    Í greininni er megintilgangur hlutafélagsins skilgreindur. Jafnframt er gert ráð fyrir að nánar sé kveðið á um tilgang félagsins í samþykktum þess. Tilgangi félagsins má síðan breyta á hluthafafundi krefjist aðstæður þess. Með því gefst nauðsynlegt svigrúm til að aðlaga hlutverk félagsins að aðstæðum hverju sinni. Sérstaklega er kveðið á um heimild félagsins til að gerast eignaraðili í öðrum stofnunum eða félögum, þar á meðal hlutafélögum. Félaginu má breyta í almenningshlutafélag.

Um 3. gr.


    Hér er kveðið á um að ríkissjóður skuli í upphafi vera einn eigandi allra hlutabréfa í nýja félaginu. Er það undantekning frá almennum reglum hlutafélagalaga, sbr. 4. gr. frumvarpsins. Enda þótt ríkissjóður verði eigandi allra hlutabréfa félagsins við stofnun þess er fyrirhugað að selja öðrum hluti og jafnvel öll hlutabréf í félaginu. Meta þarf sérstaklega hvenær aðstæður eru ákjósanlegar til sölu áður en ákvörðun verður tekin þar um. Skal við söluna stefnt að dreifðri hlutafjáreign þannig að enginn einn aðili eignist meiri hluta. Frá þessu má þó víkja ef almenningshlutafélag á í hlut. Jafnframt skal við söluna sérstaklega horft til heimamanna og starfsmanna á þeim stöðum sem verksmiðjur eru starfræktar. Skal óskað eftir viðræðum við heimamenn og/eða samtök þeirra um hugsanleg kaup á hlutabréfum. Ákvörðun um sölu hlutafjár í félaginu yrði samkvæmt þessari grein í höndum hluthafa. Í samþykktum félagsins er gert ráð fyrir að hluthafafundur fjalli um sölur á viðamiklum eignum félagsins. Er með því átt við sölu á einni af verksmiðjum félagsins ásamt fylgihlutum hennar. Þykir eðlilegt að á hluthafafundi, sem fer með æðsta vald í málefnum félagsins, sé fjallað um meiri háttar eignabreytingar.
     Þar sem starfsemi Síldarverksmiðja ríkisins hefur heyrt undir starfssvið sjávarútvegsráðuneytisins er gert ráð fyrir að sjávarútvegsráðherra fari með eignarhlut ríkisins í félaginu. Við sölu á eignarhlut ríkisins í félaginu eða viðamikilla eigna þess, sem um er rætt í 1. mgr., verður haft samráð við viðskiptaráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Samráð við fjármálaráðuneyti er mikilvægt vegna þess hlutverks sem ráðuneytið fer með varðandi eignir ríkisins, réttarstöðu starfsmanna og fyrirhugaða yfirtöku á skuldum SR, sbr. 9. gr. frumvarps þessa.

Um 4. gr.


    Þar sem ríkissjóður verður í upphafi eini hluthafinn í félaginu er nauðsynlegt að veita undanþágu frá ákvæðum hlutafélagalaga að því er varðar tölu stofnenda og hluthafa.

Um 5. gr.


    Í greininni er lagt til að hlutabréf útgefin við stofnun hlutafélagsins verði undanþegin stimpilskyldu.
     Hlutafélagið verður skattskylt eftir almennum reglum, þar á meðal samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt og eignarskatt. Því er nauðsynlegt að upphafleg staða félagsins til skattlagningar sé ljós. Þar sem fyrirtækið hefur að miklu leyti verið gert upp samkvæmt almennum reglum tekjuskattslaga vegna landsútsvars skapar upphafleg staða fyrnanlegra eigna ekki vandkvæði og er því óþarft að kveða á um það efni. Ekki er gert ráð fyrir að nýja hlutafélagið yfirtaki uppsafnað rekstrartap Síldarverksmiðja ríkisins. Í þessu sambandi má hins vegar benda á að í 9. gr. er gert ráð fyrir að ríkissjóður yfirtaki hluta skulda SR þannig að eiginfjárstaða nýja hlutafélagsins verði viðunandi.

Um 6. gr.


    Í 1. mgr. greinarinnar er lagt til að sett verði tímamörk fyrir stofnun félagsins og er miðað við lok aprílmánaðar 1992 í þeim efnum. Drög að stofnsamningi og samþykktum fyrir félagið má sjá í fskj.V.

Um 7. gr.


    Greininni er ætlað að tryggja föstum starfsmönnum SR sömu störf hjá nýja félaginu við stofnun þess og þeir gegna nú. Engin breyting verður því á atvinnumöguleikum, launum eða lífeyrisréttindum starfsmanna. Ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954 um biðlaun þykja því ekki eiga við.
     Miklar árstíðasveiflur eru í rekstri Síldarverksmiðja ríksins. Afar misjafnt er því hversu margir starfsmenn eru í starfi hjá verksmiðjunum. Á síðasta heila vinnslutímabili vertíðina 1989–1990 voru um 150 manns starfandi hjá félaginu. Fastráðnir starfsmenn eru nú 45 og starfa þeir allt árið. Í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins greiða 14 starfsmenn. Þrátt fyrir að staða sé lögð niður eiga starfsmenn, sem greitt hafa iðgjöld til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, rétt á að greiða þangað áfram iðgjöld sem miðuð eru við launaflokk þann er staðan var í er hún var lögð niður. Nýtur starfsmaður þá sömu réttinda úr sjóðnum sem hefði hann gegnt starfi sínu áfram. Um réttindi þessi er fjallað í 2. mgr. 17. gr. laga nr. 29/1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.

Um 8. gr.


    Starfsemi Síldarverksmiðja ríkisins hefur heyrt undir starfssvið sjávarútvegsráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að sjávarútvegsráðherra fari með eignarhlut ríkisins í félaginu. Því er eðlilegt að hann annist fyrir hönd ríkisstjórnarinnar undirbúning að stofnun félagsins, sbr. 1. gr.

Um 9. gr.


    Í sex af síðustu sjö árum hafa Síldarverksmiðjur ríkisins verið reknar með tapi og nemur uppsafnað tap undanfarinna ára hundruðum milljóna króna. Eins og sjá má af fskj. IV er næsta víst að SR verði rekið með tapi árið 1991. Tap síðustu ára má m.a. rekja til brests í loðnuveiðum. Á árinu 1990 var ráðist í enduruppbyggingu á Seyðisfirði. Kostnaður af breytingum fór langt fram úr áætlun og er fyrirsjánlegt að sú framkvæmd mun verða verksmiðjunum erfitt fótakefli verði ekkert að gert. Gera má ráð fyrir að uppsafnaðar skuldir Síldarverksmiðja ríksins verði á milli 1.300 og 1.400 m.kr. í árslok 1991.
     Eigið fé verksmiðjanna hafði 30. júni sl. lækkað um 154 m.kr. frá síðustu áramótum eða úr 377 m.kr. í 223 m.kr. Búast má við að nú í árslok hafi það enn rýrnað um 75 m.kr. og verði komið niður í um 150 m.kr. Ef svo heldur fram sem horfir mun eigið fé Síldarverksmiðja ríkisins verða uppurið á fyrri hluta ársins 1992.
     Samkvæmt rekstraráætlun Síldarverksmiðja ríkisins nemur framlag rekstrar til afskrifta og fjármagnskostnaðar miðað við framleiðslu í meðalári um 210 m.kr. eða 13–14% af tekjum. Miðað við þær forsendur munu Síldarverksmiðjur ríkisins ekki geta staðið undir greiðslubyrði vaxta og afborgana af þegar teknum langtímalánum. Löggiltur endurskoðandi fyrirtækisins varar í bréfi, dags. 8. október sl., sem fylgdi uppgjöri fyrir fyrstu sex mánuði ársins 1991, við fjárhagsstöðu SR og telur að „eins og fjárhag fyrirtækisins er nú komið verður að telja harla ólíklegt að unnt verði að breyta fyrirtækinu í hlutafélag við núverandi aðstæður án verulegra fjárframlaga eigenda þess“, sjá fskj. VI. Ríkisendurskoðun tekur undir aðvaranir endurskoðanda í bréfi dags. 14. október 1991 og telur brýna nauðsyn á að leysa vandamál SR til frambúðar sem fyrst, sjá fskj. VII.
     Með hliðsjón af framansögðu er leitað heimildar til yfirtöku á allt að 500 m.kr. af skuldum verksmiðjanna að undangengnu mati sjávarútvegsráðuneytis og fjármálaráðuneytis á rekstrarhæfni fyritækisins og tengist það stofnun hlutafélagsins.

Um 10. gr.


    Til að tryggja samfelldan rekstur Síldarverksmiðja ríksins er gert ráð fyrir að lög nr. 1/1938, um Síldarverksmiðjur ríkisins, haldi gildi sínu til loka aprílmánaðar 1992 þegar nýja félagið yfirtekur rekstur þess, sbr. 6. gr.






Fylgiskjal I.


Afkastageta og hráefnisgeymslur einstakra verksmiðja 1990.





Fylgiskjal II.


Móttekið hráefni á vetrarvertíð 1990 og á vertíðinni í heild.





Fylgiskjal III.


Loðnuveiðar í þús. lesta frá 1964.





Fylgiskjal IV.


Úr rekstrar- og efnahagsreikningum Síldarverksmiðja ríkisins.





Fylgiskjal V.


STOFNSAMNINGUR


SR-verksmiðjur hf.





Fylgiskjal VI.







Fylgiskjal VII.