Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 211 . mál.
257. Tillaga til þingsályktunar
um rekstur dagvistarstofnana fyrir börn á vegum sjúkrahúsa.
Flm.: Gunnlaugur Stefánsson, Einar K. Guðfinnsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna að því á grundvelli laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að viðkomandi sveitarfélög taki við rekstri dagvistarstofnana fyrir börn sem nú eru reknar af sjúkrahúsum á kostnað ríkissjóðs.
Greinargerð.
Lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga tóku gildi 1. janúar árið 1990. Fyrir þann tíma greiddi ríkið 50% af byggingarkostnaði dagvistarheimila og sveitarfélögin greiddu hin 50% og sáu svo um reksturinn. Með nýjum lögum er sveitarfélögum gert að sjá um stofnkostnað og rekstrarkostnað með þeirri undantekningu þó að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga kemur fámennustu sveitarfélögunum til aðstoðar með framlögum.
Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Gunnlaugs Stefánssonar um rekstur dagvistarheimila fyrir börn á vegum sjúkrahúsanna í Reykjavík kemur m.a. eftirfarandi fram:
„Á árinu 1990 greiddu Ríkisspítalar 115 millj. kr. fyrir vistun á dagheimilum og 7,9 millj. kr. fyrir vistun hjá dagmæðrum. Borgarspítali greiddi 68,7 millj. kr. fyrir vistun á dagheimilum og 1,2 millj. kr. fyrir vistun hjá dagmæðrum. Ríkisspítalar reka átta leikskóla og skóladagheimili með samtals 250 rými í Reykjavík. Borgarspítali rekur þrjá leikskóla og eitt skóladagheimili eða 130 rými og Landakotsspítali rekur þrjú dagvistarheimili með 85 rými. Börnin, sem vistar njóta, eru nokkru fleiri en plássin segja til um og helgast þetta af því að sum börn mæta þrjá daga í viku og önnur fjóra eða fimm daga eftir því hversu mikið foreldrið vinnur á spítalanum. Landspítali og Landakotsspítali hafa borgað að fullu stofnkostnað dagvistarheimila sinna en Borgarspítali hefur ekki tekið þátt í stofnkostnaði dagvistarheimila spítalans. Reykjavíkurborg hefur greitt að fullu stofnkostnað heimilanna fyrir Borgarspítalann en ekki tekið þátt í öðrum stofnkostnaði dagvistarheimila spítala í Reykjavík og tekur engan þátt í rekstrarkostnaði. Sjúkrahúsin í Reykjavík hafa farið út í rekstur dagvistarstofnana fyrir börn til þess að laða að það starfsfólk sem er torfengið, einkum hjúkrunarfræðinga, og miðað við fjölda starfsmanna á þessum spítölum er fjöldi dagvistarrýma lítill. Sjúkrahúsin mundu ekki reka dagvistarheimili ef nægilegt framboð væri á dagvistarrými í Reykjavík fyrir börn.“
Þá reka Ríkisspítalar einnig einn leikskóla og eitt skóladagheimili við Vífilsstaði, samtals með 40 rými, og við Kópavogshæli er leikskóli með 14 rými.
Af þessum upplýsingum má ljóst vera að ríkissjóður tekur mikinn þátt í rekstri dagvistarstofnana á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, sem gildi tóku 1. janúar 1990, er hér um að ræða að minnsta kosti 230 millj. kr. rekstrarkostnað á ári fyrir ríkissjóð. Það hlýtur að teljast eðlilegt að viðkomandi sveitarfélög taki við þessum rekstri af ríkissjóði. Hér sitja sveitarfélög í landinu ekki við sama borð gagnvart lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á meðan sjúkrahúsin á höfuðborgarsvæðinu sjá um svo umfangsmikinn dagheimilarekstur með framlögum úr ríkissjóði.