Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 164 . mál.


260. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 76/1985, um Framkvæmdasjóð Íslands.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarp þetta sem felur í sér að Framkvæmdasjóður Íslands verði undir stjórn Lánasýslu ríkisins. Nefndin fékk á sinn fund til viðræðna um málið Indriða H. Þorláksson og Snorra Olsen frá fjármálaráðuneytinu.
    Meiri hluti nefndarinnar mælir með samþykkt frumvarpsins.

Alþingi, 12. des. 1991.



Matthías Bjarnason,

Rannveig Guðmundsdóttir.

Geir H. Haarde.


form., frsm.



Ingi Björn Albertsson.

Kristín Ástgeirsdóttir,

Sólveig Pétursdóttir.


með fyrirvara.