Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 1 . mál.
342. Breytingartillaga
við brtt. á þskj. 302 [Fjárlög 1992].
Frá Guðmundi Bjarnasyni.
Við 56. lið, 6.23. Heimildarliðurinn orðist svo:
6.23 Að ganga til samninga við Reykjavíkurborg og Sjálfeignarstofnun St. Jósefsspítala um nánara samstarf og/eða sameiningu Ríkisspítala, Borgarspítalans og St. Jósefsspítala, Landakoti. Samningsgerðin verði í höndum heilbrigðisráðherra og samstarfsráðs sjúkrahúsanna í Reykjavík, auk fjármálaráðherra. Samningurinn er háður samþykki fjárlaganefndar.