Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 197 . mál.


358. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 78 23. desember 1980, um jöfnunargjald, sbr. lög nr. 108/1990.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur, Halldóri Ásgrímssyni,


Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni og Steingrími J. Sigfússyni.



    Við 1. gr. Í stað orðanna „30. júní 1992“ í niðurlagi greinarinnar komi: 31. desember 1992.
    Við 3. gr. Í stað orðanna „1. júlí 1992“ í síðari málsgrein komi: 1. janúar 1993.

Greinargerð.


    Það er skoðun flutningsmanna að jöfnunargjald beri að leggja á allt næsta ár, sbr. nefndarálit 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar á þskj. 347, en flutningsmenn tillögunnar mynda 1. minni hluta nefndarinnar.