Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 30 . mál.


401. Breytingartillaga



við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1992.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (RG, IBA, VE, EKG, SP).



    Á eftir 5. gr. komi tvær nýjar greinar svohljóðandi:
         
    
(6. gr.)
                            5. gr. laga nr. 44/1976, um Fiskveiðasjóð Íslands, með síðari breytingum, orðast svo:
                            Ríkissjóður ber eigi ábyrgð á þeim skuldbindingum sem Fiskveiðasjóður stofnar til eftir 1. mars 1992.
         
    
(7. gr.)
                            Heimilt er að afnema ábyrgð ríkissjóðs á nýjum skuldbindingum sem Iðnþróunarsjóður stofnar til eftir gildistöku laga þessara, enda sé leitað eftir staðfestingu ríkisstjórna Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um viðeigandi breytingu á samningi um norrænan iðnþróunarsjóð fyrir Ísland, sbr. lög nr. 9/1970, með síðari breytingum.
    Við 6. gr. (er verður 8. gr.). Greinin orðist svo:
                  Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að taka lán að hluta eða öllu leyti í stað þess að veita ríkisábyrgð á lántökur þeirra aðila sem tilgreindir eru í 2.–4. tölul. 4. gr. og í 5. gr. og endurlána til þeirra með þeim kjörum og skilmálum sem hann ákveður.
                  Erlendar lántökur þeirra aðila sem tilgreindir eru í 1. mgr. og ríkissjóðs mega nema allt að 8.581 m.kr. á árinu 1992.
                  Frá hámarki því, er um getur í 2. mgr., má víkja svo fremi að nettó innstreymi erlends lánsfjár sé í samræmi við forsendur fjárlaga og lánsfjárlaga.
    Við 7. gr. Greinin falli brott.

Greinargerð.


    Gerð er grein fyrir þeim breytingartillögum, sem hér er lagt til að verði samþykktar, í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar á þskj. 245.
    Auk þess er lagt til að eftir 1. mars 1992 beri ríkissjóður ekki ábyrgð á þeim skuldbindingum sem Fiskveiðasjóður stofnar til. Þessi breyting hefur engin áhrif á eldri skuldbindingar sjóðsins sem ríkissjóður kann að ábyrgjast.