Ferill 234. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 234 . mál.


407. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 10/1990, um laun forseta Íslands.

Flm.: Ólafur Þ. Þórðarson.



1. gr.


     Orðin „og er undanþeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum“ í 2. gr. laganna falli brott.

2. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 1992.

Greinargerð.


    Launakjör forseta Íslands eru ákveðin í sérlögum, nú lögum nr. 10/1990. Er það skv. 9. gr. stjórnarskrárinnar sem segir að um greiðslur til forseta af ríkisfé skuli ákveðið í lögum. Launafjárhæðir eru svo ákveðnar af Kjaradómi.
    Í lögunum um laun forseta Íslands segir að forsetinn sé undanþeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum. Hann mun vera eini einstaklingurinn sem þeirra sérréttinda nýtur. Er alveg ljóst að þetta fyrirkomulag er ekki í anda ákvæða 78. gr. stjórnarskrárinnar en þar segir að ekki megi leiða í lög nein sérréttindi sem bundin séu við aðal, nafnbætur eða lögtign.
    Skattfrelsi forseta komst á strax þegar lýðveldið var stofnað 1944 og hafði raunar gilt um ríkisstjóra nokkur ár áður. Það blasir við hvaðan fyrirmyndin er sótt: til danska kóngsins. Frá alda öðli hafa kóngar og kóngafólk verið undanþegin sköttum og skyldum sem lögð hafar verið á þegnana. Þetta gilti líka um aðalinn, landaðalinn og síðar embættisaðalinn, en var afnumið þegar frelsishreyfingar tóku að móta þjóðfélagsskipunina á síðari hluta 18. aldar. Ákvæði 78. gr. íslensku stjórnarskrárinnar, sem er alveg hliðstæð 83. gr. dönsku stjórnarskrárinnar, eiga sér því augljósa sögulega skýringu í lýðræðisþróun síðustu alda. Í Bandaríkjunum, þar sem vagga lýðræðislegra stjórnarhátta stóð, greiðir forsetinn (eftir þeim upplýsingum sem flutningsmaður hefur) skatta og skyldur eins og aðrir landsmenn. Í Evrópu hefur jafnan verið umræða um að afnema bæri skattfrelsi kóngafólks og er skemmst að minnast þess að hún blossaði upp nú við 40 ára ríkisstjórnarafmæli Bretadrottningar.
    Að dómi flutningsmanns ber að afnema úr lögum sérákvæði um skattfrelsi forseta lýðveldisins. Þau eru tímaskekkja og andstæð jafnréttishugmyndum þorra landsmanna.
    Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að þessi breyting taki gildi 1. ágúst nk. til þess að ekki sé gengið gegn ákvæðum síðari málsliðar 2. mgr. 9. gr. stjórnarskrárinnar um að óheimilt sé að lækka greiðslur til forseta á kjörtímabili hans.