Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 243 . mál.


419. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um stöðu leiguliða á bújörðum og greiðslur fyrir fullvirðisrétt.

Frá Ragnari Arnalds.



    Hvaða reglur gilda um greiðslur til bænda fyrir niðurfærslu fullvirðisréttar samkvæmt búvörusamningi þegar jörð er í leigu, annars vegar þegar um er að ræða ríkisjarðir og hins vegar aðrar jarðir?
    Ef greiðsla til bænda fyrir niðurfærslu fullvirðisréttar gengur til leiguliða getur þá landsdrottinn krafið leiguliða um greiðsluna?
    Ef greiðslan gengur til leiguliða er hann þá bótaskyldur vegna rýrnunar fullvirðisréttar þegar hann stendur upp af jörðinni?
    Ef greiðsla gengur til landsdrottins á þá ekki leiguliði rétt á lækkun jarðarleigu?
    Er í undirbúningi að setja ákvæði í lög um kaup og sölu fullvirðisréttar og réttarstöðu ábúenda og leiguliða í því sambandi?