Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. –
253
. mál.
430. Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um stöðugildi í heilbrigðisþjónustu á Vestfjörðum.
Frá Jónu Valgerði Kristjánsdóttur.
Hversu mörg stöðugildi eru í heilbrigðisþjónustu á Vestfjörðum og hversu mörg voru ómönnuð 1. janúar sl.?
Verður þeim heilbrigðisstofnunum, þar sem stöður voru ekki fullmannaðar á síðasta ári, gert að draga úr launakostnaði á þessu ári í samræmi við áform um flatan niðurskurð á launalið fjárlaga?