Ferill 255. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 255 . mál.


432. Frumvarp til laga



um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara.

(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991–92.)



1. gr.


    Flutningskostnaður á olíuvörum innan lands skal jafnaður eins og nánar greinir í lögum þessum.
     Jöfnun flutningskostnaðar nær til flutninga með olíuskipum á gasolíu, svartolíu, öðrum milliþykkum brennsluolíum, bifreiðabensíni og flugvélaeldsneyti til innanlandsflugs, þó ekki á olíum ætluðum til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga og millilandaflugs og erlendra skipa og flugvéla.
     Jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum nær til flutningskostnaðar frá innflutningshöfnum til annarra hafna á landinu sem jafnframt teljast aðaltollhafnir við tollafgreiðslu skipa. Heimilt er viðskiptaráðherra að ákveða með reglugerð að jöfnun á flutningskostnaði skuli einnig ná til annarra hafna en aðaltollhafna að því er varðar einstakar bensín- og olíutegundir, enda þyki heppilegt eða nauðsynlegt að dreifa olíuvörum frá viðkomandi höfn.

2. gr.


    Leggja skal flutningsjöfnunargjald á allt bensín og olíu sem flutt er til landsins og ætlað er til nota innan lands, sbr. 1. gr., og rennur gjaldið í sérstakan sjóð, Flutningsjöfnunarsjóð olíuvara.
     Verðlagsráð ákveður gjald skv. 1. mgr. fyrir minnst þrjá mánuði í senn og skal upphæð þess við það miðuð að tekjur af gjaldinu nægi til að greiða flutningskostnað á því magni af framangreindum olíuvörum sem flytja þarf frá innflutningshöfnum til þeirra hafna sem jöfnun flutningskostnaðar nær til svo að fullnægt verði eftirspurn eftir þeim olíuvörum sem dreift er þaðan.

3. gr.


    Innflytjendur, sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, sbr. 1. gr., skulu greiða flutningsjöfnunargjaldið til Flutningsjöfnunarsjóðs af sölu í hverjum mánuði, eigi síðar en á síðasta virka degi að tveimur mánuðum liðnum frá lokum sölumánaðar.
     Aðrir innflytjendur bensíns og olíu, sbr. 1. gr., skulu greiða gjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda.
     Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast innheimtu gjaldsins og skulu þeir skila gjaldinu til viðskiptaráðuneytisins sem skilar því til Flutningsjöfnunarsjóðs.

4. gr.


    Greiða skal úr Flutningsjöfnunarsjóði olíuvara kostnað við flutning olíu með olíuskipum frá innflutningshöfn til þeirra hafna sem jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum nær til.
     Mynda skal innan Flutningsjöfnunarsjóðs sérstakan reikning fyrir hverja olíutegund sem verðjöfnun nær til. Skal færa tekjur af flutningsjöfnuði hverrar olíutegundar á reikninginn og sömuleiðis útgjöld af jöfnun flutningskostnaðar af sömu tegund. Stefnt skal að því að ná jafnvægi milli álagðs flutningsjöfnunargjalds og útgjalda vegna flutningsjöfnunar á hverri olíutegund innan almanaksársins.

5. gr.


    Verði tekjuafgangur á Flutningsjöfnunarsjóði olíuvara í árslok skal hann yfirfærast til næsta árs. Ef tekjur sjóðsins á almanaksári hrökkva ekki fyrir útgjöldum skal greiða það sem á vantar af fyrstu tekjum sjóðsins á næsta ári.

6. gr.


    Verðlagsstofnun annast greiðslur úr Flutningsjöfnunarsjóði olíuvara í samræmi við lög þessi, reglugerð settri samkvæmt þeim og ákvörðunum stjórnar sjóðsins.
     Í reglum skv. 1. mgr. er heimilt að ákveða tímabundna greiðslu úr Flutningsjöfnunarsjóði til reksturs innflutningsstöðva sem reistar kunna að verða utan Faxaflóasvæðisins ef ætla má að það leiði til heildarlækkunar flutningskostnaðar á olíuvörum til þeirra hafna sem jöfnun kostnaðar nær til samkvæmt lögum þessum.

7. gr.


    Stjórn Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara skal skipuð þremur mönnum sem ráðherra skipar til tveggja ára í senn. Er verðlagsstjóri eða fulltrúi hans formaður nefndarinnar en jafnframt sitja í henni nefndarmaður tilnefndur sameiginlega af þeim olíufélögum sem annast olíudreifingu í öllum landshlutum og nefndarmaður sem ráðherra skipar án tilnefningar.
     Stjórn sjóðsins og Verðlagsstofnun sjá um daglega framkvæmd á jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum.

8. gr.


    Stjórn Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara úrskurðar hvað teljast skuli flutningskostnaður. Er stjórninni m.a. heimilt að ákveða að jöfnun flutningskostnaðar milli tiltekinna hafna skuli takmörkuð við kostnað af þeim flutningsháttum sem ódýrastir eru á hverjum tíma. Sömuleiðis skal stjórninni heimilt að synja um greiðslu tiltekins kostnaðar úr sjóðnum að hluta til eða að fullu ef stjórnin telur að um misnotkun á jöfnunarkerfinu sé að ræða.

9. gr.


    Allur kostnaður af starfsemi Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara greiðist af tekjum sjóðsins og skal tekið tillit til þess við ákvörðun flutningsjöfnunargjalds.
     Fé sjóðsins skal ávaxta á sérstökum bankareikningi eða eftir nánari fyrirmælum fjármálaráðuneytisins.

10. gr.


    Að undanteknum fyrirmælum um jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum skal um verðlagningu á olíuvörum fara eftir lögum nr. 56 16. maí 1978, um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti, með síðari breytingum.
     Þó skal við það miðað að auglýst verð hvers innflytjanda gildi á öllum almennum afgreiðslustöðum hans um land allt. Hið sama gildir um gasolíu og bensín sem afgreitt er í birgðageyma við lögheimili aðila er þar stunda fasta staðbundna starfsemi.

11. gr.


    Viðskiptaráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara. Þar er því m.a. heimilt að fella niður flutningsjöfnunargjald af olíuvörum í sérstökum tilvikum sem byggjast á samningum um rekstur orkufrekra iðjuvera hér á landi. Flutningsjöfnunarsjóður jafnar ekki flutningskostnað í slíkum tilvikum.

12. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 81 4. júlí 1985.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara tekur frá gildistöku laga þessara við eignum og skuldbindingum Flutningsjöfnunarsjóðs olíu og bensíns, sbr. lög nr. 81 4. júlí 1985.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Ákveðið hefur verið að gefa allan innflutning á olíuvörum frjálsan frá 1. janúar 1992 að telja. Kemur sú skipan í stað fyrra fyrirkomulags þar sem innflutningur gasolíu og svartolíu var bundinn leyfum og hefur í raun verið stýrt á þann veg að viðskiptaráðuneytið hefur samið um olíukaup við sovéska ríkisolíufélagið Soyuznefteexport og síðan framselt samninginn í hendur olíufélaganna þriggja sem starfa hér á landi. Sama gilti um bensín, en því var hætt frá 1. janúar 1991 enda voru Sovétmenn þá ekki aflögufærir um þá vöru.
     Innflutningur á olíuvörum frá Sovétríkjunum hefur staðið frá árinu 1953 og hafa innflutningshömlur á olíu frá öðrum framleiðslusvæðum byggst á útflutningshagsmunum Íslendinga. Aðstæður eru nú breyttar og því var ákveðið að fella innflutningstakmarkanirnar úr gildi og gefa olíuviðskiptin frjáls.
     Verðlagsyfirvöld hafa af þessu tilefni fellt úr gildi hámarksverð á olíuvörum, en þess í stað munu þau beita ákvæðum verðlagslaga um bann við samráði um verðlagningu. Þá hljóta ákvæði um innkaupajöfnun að missa gildi sitt.
     Jafnframt hlýtur jöfnun flutningskostnaðar olíu að koma til endurskoðunar. Er í frumvarpi þessu lagt til að flutningsjöfnunin nái einungis til flutninga með skipum frá innflutningshöfn til aðaltollhafna og að ráðherra geti jafnframt ákveðið að hún nái til annarra hafna sem eðlilegt þykir að dreifa olíu frá. Er þá gert ráð fyrir að dreifingarkostnaður olíu greiðist að öðru leyti af álagningu dreifingaraðila. Gert er ráð fyrir að auglýst verð hvers innflytjanda gildi á öllum almennum afgreiðslustöðvum hans sem þó kemur ekki í veg fyrir að hann veiti einstökum viðskiptavinum afslátt frá skráðu verði, t.d. við útboð á olíukaupum.
     Það er skoðun viðskiptaráðuneytisins að sú einföldun á jöfnun flutningskostnaðar, sem hér er lögð til, muni leiða til aukinnar hagkvæmni í dreifingu olíuvara og lægri kostnaðar þegar á heildina er litið.
     Flutningsjöfnunargjald er nú 1,04 kr. af hverjum bensínlítra sem er 1,75% af útsöluverði 92 oktana bensíns. Flutningsjöfnunargjald af gasolíu er 1,08 kr. á hvern lítra sem er 5,8% af útsöluverði. Flutningsjöfnunargjald af svartolíu er 1.080 kr. á hvert tonn, en það nemur 9,2% af útsöluverði olíunnar.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Lagt er til að jöfnun flutningskostnaðar á olíuvörum nái framvegis til flutningskostnaðar með olíuskipum milli innflutningshafna og annarra hafna sem jafnframt eru aðaltollhafnir svo og annarra hafna samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra enda þyki heppilegt eða nauðsynlegt að dreifa olíuvörum frá viðkomandi höfn.
     Þetta kemur í stað núgildandi skipunar þar sem jöfnun flutningskostnaðar nær jafnt til flutninga á sjó og landi, til dreifingarstaða á hálendinu jafnt sem á ystu nesjum.

Um 2. gr.


    Hér er lögð til svipuð skipun og verið hefur. Breytt er um nafn á flutningsjöfnunarsjóði til aðgreiningar frá fyrri sjóði og ákvörðun um jöfnunargjald er falin verðlagsráði.

Um 3.–5. gr.


    Greinar þessar þarfnast ekki skýringa.

Um 6. gr.


    Lagt er til að Verðlagsstofnun annist greiðslur úr Flutningsjöfnunarsjóði eftir reglum sem ráðherra setur að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins. Einnig að heimilt verði að ákveða í slíkum reglum tímabundna greiðslu til innflutningsstöðva utan Faxaflóasvæðisins ef ætla má að flutningur á olíuvörum til þeirra leiði til heildarlækkunar á flutningskostnaði olíuvara til þeirra hafna sem jöfnun kostnaðar nær til samkvæmt lögunum.

Um 7.–9. gr.


    Greinar þessar þarfnast ekki skýringa.

Um 10. gr.


    Í þessari grein er ítrekað að lög um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti gildi um olíuviðskipti með því fráviki sem af jöfnun flutningskostnaðar samkvæmt lögum þessum leiðir. Það er því í höndum verðlagsráðs að fjalla um verðlagningu olíuvara.
     Gert er ráð fyrir að auglýst verð hvers innflytjanda gildi á öllum afgreiðslustöðvum hans og við afgreiðslu á birgðatanka notenda er þar stunda fasta staðbundna starfsemi. Þetta ákvæði kemur ekki í veg fyrir að hann veiti einstökum kaupendum afslátt í samningum, t.d. við útboð á olíukaupum eða hann krefji sérstaklega um kostnað vegna flutnings á olíuvörum, t.d. til verktaka inni á hálendinu.

Um 11. og 12. gr.


    Greinar þessar þarfnast ekki skýringa að öðru leyti en því að samkvæmt samningum um álverið í Straumsvík skal álverið undanþegið álagningu flutningsjöfnunargjalds af olíuvörum. Árlega flytur álverið inn nokkuð magn af olíuvörum til starfsemi sinnar og þykir æskilegt að hafa almenna heimild til að gera ráð fyrir slíkum samningsbundnum undanþágum í reglugerð.

Um ákvæði til bráðabirgða.


     Lagt er til að Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara taki við eignum og skuldbindingum
flutningsjöfnunarsjóðs samkvæmt núgildandi lögum í ársbyrjun 1992 og er það gert til að auðvelda breytingar á framkvæmd flutningsjöfnunar á olíuvörum við gildistöku laganna.



Fylgiskjal.


REGLUGERÐ


um flutningsjöfnun olíuvara.



1. gr.


    Jafna skal flutningskostnað með olíuskipum á gasolíu, svartolíu, öðrum milliþykkum brennsluolíum, flugvélaeldsneyti og bifreiðabensíni, þó ekki á olíum ætluðum til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga eða á flugvélaeldsneyti. Kostnaður við að flytja olíuvörur frá innflutningshöfn til eftirtalinna hafna er greiddur af Flutningsjöfnunarsjóði olíuvara:

a.  Almennt til eftirtalinna hafna sem jafnframt eru aðaltollhafnir við tollafgreiðslu skipa:

    Reykjavík     Akureyri     Eskifjörður
    Akranes     Húsavík     Vestmannaeyjar
    Ísafjörður     Seyðisfjörður     Keflavík
    Sauðárkrókur     Neskaupstaður     Hafnarfjörður
    Siglufjörður

b.  Bensín til framangreindra aðaltollhafna, auk þess til eftirtalinna hafna:

    Stykkishólmur     Blönduós
    Patreksfjörður     Þórshöfn
    Tálknafjörður     Höfn í Hornafirði

c.  Gasolía til framangreindra aðaltollhafna, auk þess til eftirfarandi hafna:

    Rifshöfn     Suðureyri     Ólafsfjörður     Reyðarfjörður
    Ólafsvík     Bolungarvík     Dalvík     Fáskrúðsfjörður
    Grundarfjörður     Súðavík     Hrísey     Stöðvarfjörður
    Stykkishólmur     Drangsnes     Grímsey     Breiðdalsvík
    Patreksfjörður     Hólmavík     Raufarhöfn     Djúpivogur
    Tálknafjörður     Hvammstangi     Þórshöfn     Höfn í Hornafirði
    Bíldudalur     Blönduós     Vopnafjörður     Þorlákshöfn
    Þingeyri     Skagaströnd     Borgarfjörður eystri
    Flateyri     Hofsós     Mjóifjörður

d.  Svartolía til framangreindra aðaltollhafna, auk þess til eftirtalinna hafna:

    Ólafsvík     Skagaströnd     Reyðarfjörður
    Patreksfjörður     Ólafsfjörður     Fáskrúðsfjörður
    Þingeyri     Raufarhöfn     Djúpivogur
    Flateyri     Þórshöfn     Höfn í Hornafirði
    Bolungarvík     Vopnafjörður

2. gr.


    Tekjur af flutningsjöfnunargjaldi skal leggja í sérstakan reikning fyrir hverja olíutegund. Þeir aðilar, sem gera kröfur á hendur sjóðnum, skulu haga bókhaldi sínu þannig að fullnægjandi sé að mati sjóðstjórnar með tilliti til jöfnunar flutningskostnaðar.
     Úr reikningi hverrar olíutegundar skal greiða flutningskostnað á bensíni og olíum frá innflutningshöfn til annarra hafna sem jöfnun flutningskostnaðar nær til, svo sem vegna
    útskipunar,
    flutningsgjalds,
    sjótryggingar,
    uppgufunar og leka,
    uppskipunar og
    vörugjalda.
    Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara greiðir eigi kostnað við flutning innan aðaltollhafna skv. a-lið 1. gr. almennt, skv. b-lið 1. gr. bensíns, skv. c-lið 1. gr. gasolíu og skv. d-lið 1. gr. svartolíu þessarar reglugerðar né til annarra hafna sem ekki er getið í 1. gr., en hann skal kostaður af álagningu viðkomandi dreifingaraðila.

3. gr.


    Stjórn Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara úrskurðar hvað teljast skuli flutningskostnaður, sbr. 2. gr. Stjórninni er m.a. heimilt að ákveða að jöfnun flutningskostnaðar milli tiltekinna hafna skuli takmörkuð við kostnað af þeim flutningsháttum sem eru ódýrastir á hverjum tíma. Sömuleiðis skal stjórninni heimilt að synja um greiðslu tiltekins kostnaðar úr sjóðnum að hluta eða fullu ef um misnotkun á jöfnunarkerfinu sýnist vera að ræða í tilteknum viðskiptum.

4. gr.


    Kostnaður við starfsemi sjóðsins, stjórn, skrifstofuhald, endurskoðun o.fl. greiðist af fé sjóðsins og skal tekið tillit til þess við ákvörðun flutningsjöfnunargjaldsins. Fé það, sem á hverjum tíma er í Flutningsjöfnunarsjóði olíuvara, skal ávaxta í banka á sérstökum reikningi. Stjórn sjóðsins skal skila viðskiptaráðuneytinu árlega endurskoðuðu uppgjöri fyrir sjóðinn.

5. gr.


    Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. . . . 1992, um flutningsjöfnun olíuvara, öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytið,