Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 266 . mál.
445. Tillaga til þingsályktunar
um rannsóknir á botndýrum í Breiðafirði.
Flm.: Sturla Böðvarsson, Ingibjörg Pálmadóttir,
Jóhann Ársælsson, Guðjón Guðmundsson.
Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að láta fara fram rannsókn á botndýrum í Breiðafirði í samvinnu við vinnslustöðvar og útgerðir skelbáta við Breiðafjörð.
Tilgangur rannsókna verði að leita nýrra hörpudiskmiða á Breiðafirði, meta betur en gert hefur verið hörpudiskmiðin og kanna aðrar dýrategundir sem nýtanlegar kunna að vera.
Greinargerð.
Greinargerð.
Með minnkandi veiðiheimildum skipa, sem stunda bolfiskveiðar, verður stöðugt mikilvægara að auka rannsóknir annarra fiskstofna og nýtanlegra botndýra.
Skelveiðar hafa verið stundaðar á Breiðafirði í rúma tvo áratugi með ágætum árangri. Hafrannsóknastofnun hefur lagt til verulegan samdrátt veiða á hörpudiski án þess að rannsóknir hafi verið auknar. Aðrar botndýrategundir hafa ekki verið rannsakaðar að nokkru marki. Sjómenn, sem stunda skelveiðar, telja nauðsynlegt að auka rannsóknir og hafa lýst vilja sínum til þess að taka þátt í rannsóknaverkefni sem miðist við að rannsaka veiðisvæði hörpudisksins og annarra botndýra.
Að beiðni þingmanna Vesturlands tók Hrafnkell Eiríksson fiskifræðingur saman stutta greinargerð um botndýrarannsóknir í Breiðafirði. Fylgir sú greinargerð með sem fylgiskjal.
Fylgiskjal.
Hrafnkell Eiríksson fiskifræðingur:
Auknar botndýrarannsóknir í Breiðafirði.
(10. desember 1991.)
Sem kunnugt er hefur Hafrannsóknastofnunin lagt til að hörpudiskveiði í Breiðafirði verði takmörkuð við 8.500 tonn árið 1992 en undanfarinn áratug hafa tillögur stofnunarinnar hins vegar hljóðað upp á 10–11 þús. tonna hámarksafla á ári. Rekja má þennan samdrátt til minnkandi hlutdeildar af skel yfir 70 mm í stofninum en nýliðun virðist aftur á móti góð í smáskel undir 70 mm samkvæmt niðurstöðum stofnmælingar 1991 (1. og 2. mynd).
Vegna minni veiða á ýmsum helstu nytjategundum á næsta ári eða jafnvel árum er því enn frekari ástæða nú en áður að huga að nýjum möguleikum í fiskveiðum hérlendis. Til þess að svo geti orðið þarf auknar rannsóknir og eitt af líklegri svæðum til árangurs er Breiðafjörður, a.m.k. hvað varðar skeldýr og önnur botndýr. Hér á eftir verður fjallað lauslega um nokkra nýja möguleika með auknum rannsóknum í Breiðafirði.
Hörpudiskur. Talið er mjög tímabært í ljósi núverandi samdráttar að leita nýrra hörpudiskmiða á þessu svæði. Undirritaður hefur rætt við nokkra skelveiðiskipstjóra nú í haust um að hver bátur gefi dagsvinnu eða svo í slíkt verkefni sem yrði skipulagt og stjórnað frá rannsóknaskipinu Dröfn í tengslum við aðrar rannsóknir skipsins á svæðinu. Fyrstu viðbrögð manna hafa verið góð en fylgja þarf málinu eftir.
Ígulker. Hugsanlega má kanna útbreiðslu og stofnstærð ígulkera með hörpudiskplóg í tengslum við ofangreinda leit. Hafa ber þó í huga að þroski (gæði) ígulkerahrogna getur verið mjög ólíkur eftir svæðum þannig að það dýpi, sem vænta má hörpudisks á, sé utan við bestu ígulkerasvæðin sem eru líklega grynnra. Skollakoppur er mjög vænlegur kostur með þekkta markaði í Japan og Frakklandi. Hvað Frakkland varðar er þó enn ógengið frá samningi milli landanna ef hugsað er til útflutnings á lifandi ígulkerum.
Sæbjúga. Kanna má útbreiðslu og magn sæbjúgna með hörpudiskplóg í tengslum við hörpudiskleitina. Markaðir fyrir sæbjúgu, að vísu ekki okkar tegund, eru þekktir í Suðaustur-Asíu og Japan.
Aða. Þessi skel hefur fengist í umtalsverðu magni í hörpudiskplóga þó að ekki sé hægt að ná til nema hluta útbreiðslusvæðisins með því veiðarfæri. Hins vegar er markaður lítt eða ekki þekktur í stóru skelfiskneyslulöndunum í Evrópu, Frakklandi, Spáni og Ítalíu. Könnun, sem gerð var í haust á Hollandsmarkaði, reyndist neikvæð.
Beitukóngur. Þessir kuðungar fást yfirleitt ekki í miklu magni í hefðbundna hörpudiskplóga, enda eru þeir fremur smáir og halda sig á öðru dýpi/botnlagi en t.d. hörpudiskur. Rannsóknir með gildrum eru því nauðsynlegar í þessu tilviki en þær eru fremur seinlegar og því dýrar. Lágt verð á beitukóngi hefur þó fram til þessa staðið veiðum og vinnslu fyrir þrifum. Um hafkóng gildir svipað og um beitukóng nema hvað vinnsla hans er vandasamari vegna eitraðra meltingarkirtla.
Trjónukrabbi. Tilraunaveiðar á trjónukrabba, sem hófust haustið 1983, tókust þá þegar með ágætum. Verð og markaðsmál hafa hins vegar verið í flöskuhálsinum í þessu máli enda virðist trjónukrabbi dæmigerður súpu- eða kæfukrabbi vegna smæðar. Góða vísbendingu um útbreiðslu og magn trjónukrabba má þó fá með hörpudiskplóg, t.d. í tengslum við hörpudiskleit.
Kúfskel, sandskel, krókskel og báruskel er að líkindum aðeins hægt að magnmæla með sérstökum vatnsþrýstings- eða dæluplógum sem aðeins eru að hluta til staðar hérlendis. Tvær fyrrnefndu tegundirnar eru þekktar sem markaðsvara en hinar eru náskyldar t.d. hjartaskel sem veidd er í stórum stíl í Evrópu.