Ferill 287. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 287 . mál.


486. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um greiðslu ferðakostnaðar vegna tannréttinga.

Frá Þuríði Backman.



    Hvaða reglur gilda um þátttöku ríkisins í ferðakostnaði barna og aðstandenda þeirra vegna tannréttinga og hvernig er kynningu háttað á þessum reglum?
    Áformar ráðherra að beita sér fyrir breytingu til að draga úr aðstöðumun barna og aðstandenda þeirra vegna tannréttingaþjónustu með tilliti til búsetu?
    Ef svo er, hverjar eru þær breytingar og hvenær má vænta þess að þær komi til framkvæmda?