Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 308 . mál.
513. Tillaga til þingsályktunar
um framþróun sjávarútvegsbyggða.
Flm.: Sveinn Þór Elinbergsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að móta stefnu um framþróun sjávarútvegsbyggða sem byggð verði á samnýtingu þeirra á aflaauðlindinni annars vegar og framleiðslu- og þjónustuframboði strandbyggða sem að henni liggja hins vegar.
Stefnt skal að því að leggja stefnumótun þessa fram við upphaf 116. löggjafarþings.
Greinargerð.
Miklir erfiðleikar steðja nú að mörgum sjávarútvegsbyggðum þar sem sjávarútvegsfyrirtæki hafa orðið gjaldþrota og önnur eiga í talsverðum rekstrarerfiðleikum. Þetta ástand samhliða sífellt þrengri aflaheimildum skapar víða mikla óvissu og stöðnun í nauðsynlegri framþróun höfuðatvinnugreinar þessara byggða við þær nýju aðstæður í markaðs- og efnahagsmálum sem fram undan eru. Markmið nýrrar stefnumörkunar ríkisvaldsins og nýrra áherslna væri að mæta núverandi erfiðleikum margra sjávarútvegsbyggða og fyrirtækja ásamt því að stuðla að tímabærum breytingum til aðlögunar að nýjum aðstæðum í atvinnu-, efnahags- og markaðsmálum.
Öllum er ljóst að vandi þessi er ekki einasta vandi viðkomandi fyrirtækja heldur um leið þess sveitarfélags er í hlut á og þar af leiðandi þess fólks sem þar býr og byggir flest lífsafkomu sína á veiðum og vinnslu. Ný stefnumörkun og nýjar áherslur í framþróun í þessum höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar hljóta því fyrst að byggjast á núverandi ástandi og horfum. Því er rétt að hún taki jafnt til fyrirtækjanna og þeirra sveitarfélaga sem byggja afkomu sína nær einvörðungu á veiðum og úrvinnslu aflans ásamt þeirri þjónustu er í kringum það skapast. Nú er svo komið víða í strandbyggðinni að mikill vandi steðjar að sveitarfélögum og um leið búsetuskilyrðum fólks því að gjaldþrotum og lokunum sjávarútvegsfyrirtækja fjölgar stöðugt.
Mörg sveitarfélög hafa brugðist við þessu ástandi á ýmsa vegu, m.a. með því að breyta skuldum þessara fyrirtækja í hlutafé og eru þau þannig orðnir þátttakendur í atvinnulífinu á viðkomandi stað. Dæmi eru um sveitarfélög sem gerst hafa beinir þátttakendur með kaupum á skipum og aflaheimildum til að halda aflaheimildum í byggðinni, önnur hafa veitt ábyrgðir og lán til fyrirtækja, enn önnur bíða átekta. Slík þróun, að sveitarfélög neyðist til þátttöku í atvinnulífinu með einum eða öðrum hætti, hlýtur að teljast óæskileg.
Í þessum sveitarfélögum eru og hafa verið drýgstu þættir í verðmætasköpun undanfarinna áratuga. Víða blasir nú hins vegar við að réttur fólks til atvinnu er orðinn aðþrengdur. Því þarf nú þegar að grípa til ráðstafana sem duga til frambúðar. Þess vegna er þörf á stefnumörkun sem taki mið af nýjum og breyttum aðstæðum í þessu tilliti.
Markmið þeirrar stefnumörkunar hljóta því að mótast af samnýtingu fjárfestinga í mannvirkjum, vélum og tækjum, höfnum og þeim þjónustuþáttum sem fyrir eru ásamt stækkun atvinnusvæða stéttarfélaga samhliða rýmkaðri og breyttri svæðaskiptingu sveitarfélaga til að skjóta styrkari stoðum undir sterka og vaxandi byggðarkjarna þar sem svo háttar til. Slíkt hefði í för með sér fækkun fyrirtækja en tæki um leið tillit til nýrra möguleika í framleiðsluháttum og markaðssetningu. Síðast en ekki síst næði slík stefnumörkun til nýrra áherslna í samgöngumálum hvað varðaði hafnarmannvirki, vega- og flugsamgöngur sem gerði stærri og sameinuð svæði hæfari og betur í stakk búin til betri nýtingar hráefnis og framleiðsluþátta sinna um leið og þau nýttu sér frekari kosti í markaðsvæðingu þar sem eru fiskmarkaðir og góð vega- og flugsamgöngumannvirki.
Því má segja að saman fari frekari uppstokkun atvinnufyrirtækja til aukinnar og tímabærrar hagræðingar ásamt því að losa um þá stöðnun er nú ríkir og auðvelda sjávarútvegsbyggðunum nauðsynlega aðlögun að nýjum aðstæðum er kunna að skapast á næstu árum í efnahags- og markaðsmálum til aukins hagvaxtar í formi meiri verðmætasköpunar í íslenskum sjávarútvegi.