Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 334 . mál.


541. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum.

Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir.



1. gr.


    13. gr. laganna orðast svo:
    Maki eða sá sem heldur heimili með og annast elli- eða örorkulífeyrisþega og getur af þeim sökum ekki stundað nema takmarkaða vinnu utan heimilis á rétt á umönnunarbótum er nemi allt að 47.111 kr. á mánuði. Bæturnar eru heimildabætur og því háðar öðrum tekjum bótaþega.

2. gr.


    2. mgr. 19. gr. laganna orðast svo:
    Einhleypingi, sem nýtur óskertrar uppbótar (tekjutryggingar) skv. 1. mgr. og er einn um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað, skal að auki greiða heimilisuppbót, 7.582 kr. á mánuði. Sé um aðra heimilismenn að ræða skulu bæturnar greiddar enda séu þeir undir 20 ára aldri. Eigi hann rétt á skertri tekjutryggingu lækkar heimilisuppbótin í sama hlutfalli.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


     Samkvæmt 13. gr. gildandi laga getur aðeins maki elli- og örorkulífeyrisþega fengið umönnunarbætur leggi hann niður störf vegna hjúkrunar hans. Foreldrar fatlaðra og alvarlega sjúkra barna geta fengið umönnunarbætur þar til þau verða 16 ára, sbr. lög nr. 79 frá 23. desember 1991. Þá fá börnin sjálf örorkubætur og umönnunarbætur falla niður, þó svo að umönnunar sé áfram þörf.
    Mun fleiri en makar lífeyrisþega vinna umönnunarstörf á heimilum og geta ekki stundað vinnu utan heimilis vegna þess. Nú þegar legurúmum á sjúkrahúsum fækkar og erfiðara er að fá vistun fyrir þá sem þurfa á henni að halda verða heimilismenn og aðrir aðstandendur sjúkra og fatlaðra að taka að sér þessi störf og því er úrelt að miða aðeins við greiðslu til maka þess sem er umönnunarþurfi.
    Fólk annast uppkomin börn sín, foreldra, tengdafólk eða aðra ættingja en á ekki rétt á neinum greiðslum frá hinu opinbera samkvæmt lögum um almannatryggingar. Það samræmist ekki anda laganna að fólki sé mismunað eftir tengslum við þann sem það annast.
    Í 2. mgr. 19. gr. er bætt nýjum málslið: „Sé um aðra heimilismenn að ræða skulu bæturnar greiddar enda séu þeir undir 20 ára aldri.“
    Í framkvæmd er þessi lagagrein túlkuð á þann veg að sá einn eigi rétt á heimilisuppbót sem býr einn. Öllum, sem eru með fleiri í heimili, er synjað um heimilisuppbót sæki þeir um, þó svo að þeir hafi ekki fjárhagslegt hagræði af sambýlinu. Nefna má sem dæmi einstæða móður sem verður öryrki. Hún fær ekki heimilisuppbót þar sem hún býr með barni sínu. Ekkill, ellilífeyrisþegi, sem enn er með barn heimilisfast hjá sér og það er t.d. í námi, fær ekki heimilisuppbótina þótt hann hafi engan framfærslueyri annan en bæturnar frá Tryggingastofnun.
    Sé málsliðnum „Sé um aðra heimilismenn að ræða skulu bæturnar greiddar enda séu þeir undir 20 ára aldri“ bætt í málsgreinina opnast sá möguleiki að einhleypir lífeyrisþegar með barn/börn á framfæri geti fengið heimilisuppbótina. Tuttugu ára viðmiðunin er í samræmi við annað í lögunum. Þá hættir barn t.d. að fá greiddan menntunarbarnalífeyri og/eða menntunarmeðlag.
    Ekki er sanngjarnt að líta á meðlagsgreiðslur, barnalífeyri og mæðralaun sem fjárhagslegt hagræði fólks af sambýli við börn sín eins og gert er nú við framkvæmd laganna. Því ætti einhleypur lífeyrisþegi í sambýli við börn sín undir 20 ára aldri að geta notið heimilisuppbótar, uppfylli hann önnur skilyrði sem sett eru í lögunum um uppbótina, verði þetta frumvarp samþykkt.
    Það var áreiðanlega ekki tilgangurinn með lagasetningunni í upphafi að einstæðir foreldrar bæru hér skarðan hlut frá borði.