Ferill 345. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 345 . mál.
554. Frumvarp til laga
um breytingu á útvarpslögum, nr. 68/1985.
Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir. Kristín Ástgeirsdóttir, Össur Skarphéðinsson.
1. gr.
II. kafli útvarpslaga, 9.–13. gr., um Menningarsjóð útvarpsstöðva, fellur brott.
2. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Eignir Menningarsjóðs útvarpsstöðva skulu við gildistöku laga þessara renna til Sinfónínuhljómsveitar Íslands.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1992.
Greinargerð.
Í umræðum á Alþingi um frumvarp til útvarpslaga og Menningarsjóð útvarpsstöðva árið 1985 kom skýrt fram að tilgangurinn með Menningarsjóði útvarpsstöðva væri tvíþættur. Í fyrsta lagi að létta af Ríkisútvarpinu kostnaði sem það hafði af rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þ.e. 25% af rekstrarkostnaði hljómsveitarinnar umfram tekjur, sbr. lög nr. 36/1982, 11. gr., og í öðru lagi að veita fjárframlög til eflingar innlendri dagskrárgerð sem verða mætti til menningarauka og fræðslu.
Í 11. gr. útvarpslaga, nr. 68/1985, segir:
„Tekjur Menningarsjóðs útvarpsstöðva eru sérstakt gjald, menningarsjóðsgjald, sem skal vera 10% og leggjast á allar auglýsingar í útvarpi.
Af gjaldi þessu skal greiðast hlutur Ríkisútvarpsins af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sbr. lög nr. 36/1982, áður en til úthlutunar á styrkjum til útvarpsstöðva kemur.“
Í lögum og reglugerð um sjóðinn frá 1986 er kveðið á um að framlög úr sjóðnum skuli aðeins veitt útvarpsstöðvum. Framlög megi veita til dagskrárgerðar viðkomandi útvarpsstöðvar sjálfrar og til kaupa útvarpsstöðvar á efni til flutnings frá öðrum innlendum aðilum sem annast dagskrárgerð.
Rekstrarfé útvarpsstöðva er auglýsingatekjur. Þær starfa á frjálsum markaði í samkeppni við aðra fjölmiðla. Tíu prósenta skattur á auglýsingaverð veikir samkeppnisstöðu útvarpsstöðva á auglýsingamarkaði þar sem aðrir fjölmiðlar bera ekki slíkan skatt.
Þann 9. apríl 1991 var gerð breyting á reglugerðinni þar sem hlutverk sjóðsins er skilgreint að nýju og er það nú að veita íslenskum útvarpsstöðvum eða íslenskum framleiðendum dagskrárefnis framlög til eflingar innlendri dagskrárgerð, þeirri er verða megi til menningarauka og fræðslu. Þetta ákvæði í reglugerðinni stangast á við lögin um Menningarsjóðinn þar sem kveðið er á um að úthluta skuli til útvarpsstöðva eftir að hlutur Ríkisútvarpsins í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur verið greiddur. Nú eru það ekki útvarpsstöðvarnar heldur einnig framleiðendur efnis sem fá úthlutanir, þ.e. þeir sem útvarpsstöðvarnar e.t.v. keyptu efni af. Þá eru útvarpsstöðvarnar að tvígreiða fyrir efnið af auglýsingatekjum sínum, fyrst með styrknum úr Menningarsjóðnum og síðan aftur þegar þær kaupa efnið af framleiðanda. Sé yfirlit yfir greiðslur og styrki úr sjóðnum undanfarið skoðað er ljóst að hann hefur ekki náð að gegna því hlutverki sem honum var upphaflega ætlað.
Ríkisútvarpið hefur staðið undir megintekjustofni sjóðsins og þar með hluta sjóðsins í kostnaði Sinfóníuhljómsveitarinnar. Ríkisútvarpið hefur greitt í sjóðinn 337.210 þús. kr. frá upphafi en Sinfóníuhljómsveitin hefur fengið úr sjóðnum 135.513 þús. kr. frá upphafi samkvæmt upplýsingum ríkisbókhalds.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í júní 1988 segir orðrétt:
„Ljóst er að sú fyrirætlan með lögum um Menningarsjóð útvarpsstöðva að létta af Ríkisútvarpinu hluta af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur ekki náð tilgangi sínum þau tvö ár sem sjóðurinn hefur starfað. Ríkisendurskoðun telur rétt að fram fari endurskoðun á tilverurétti sjóðsins.“
Erfitt er að sjá hvaða rök væru fyrir því að láta Menningarsjóð útvarpsstöðva færa fé frá Ríkisútvarpinu til Sinfóníuhljómsveitarinnar ef uppruni þess ætti að vera óbreyttur. Sú var heldur ekki ætlun löggjafans eins og Alþingistíðindi sýna glöggt. Ríkisendurskoðun fær ekki séð að tilkoma sjóðsins hafi orðið til að efla innlenda dagskrárgerð umfram það sem samkeppni stöðvanna leiðir af sér og leggur því eindregið til í þessari skýrslu að lög og reglur, sem um sjóðinn gilda, verði endurskoðuð eða hann lagður niður.
Frá því að þessi skýrsla var gerð hafa engar breytingar orðið á sjóðnum nema til hins verra, sbr. reglugerðarbreytingu í júní 1991 þar sem styrkir til dagskrárgerðar dreifast nú víðar en til útvarpsstöðva. Niðurstaða Ríkisendurskoðunar er því í fullu gildi.
Fylgiskjal.
Ríkisútvarpið, hagdeild:
Menningarsjóður útvarpsstöðva.
Framlög og gjöld Ríkisútvarpsins í þús. kr. á verðlagi 1991, árin 1986–1991.
(6. mars 1992.)
Gjald í
Framlög úr
Ár
Menningarsj.
Menningarsj.
1986
71.208
0
1987
53.592
15.430
1988
49.330
45.039
1989
49.535
0
1990
54.497
24.725
1991
59.048
25.000
Samtals
337.210
110.194