Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 347 . mál.


560. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um starfsemi skóla.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Eru uppi áform um að leggja niður starfsemi einstakra skóla (grunnskóla, framhaldsskóla, sérskóla) á þessu ári og ef svo er, hvaða skóla er um að ræða og hvers vegna?
    Telur menntamálaráðherra sig hafa heimild til þess að leggja niður starfsemi einstakra skóla um lengri eða skemmri tíma og ef svo er, hvar er þá heimild að finna?