Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 353 . mál.


566. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um Héraðsskólann í Reykjanesi.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Hvenær ákvað fjármálaráðherra að beita heimild 6.11 í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1991 og leggja niður starfsemi Héraðsskólans í Reykjanesi síðastliðið haust?
    Var leitað samþykkis ríkisstjórnarinnar og fjárveitinganefndar (fjárlaganefndar) fyrir þeirri ákvörðun og ef svo er hvenær lá fyrir samþykki þeirra?
    Telur fjármálaráðherra að ráðherrar, hver fyrir sig, aðrir en fjármálaráðherra, hafi á árinu 1991 haft heimild til þess að leggja niður tímabundið eða til lengri tíma starfsemi stofnana sem heyra undir ráðuneyti þeirra?
    Telur fjármálaráðherra heimilt að hefja á ný starfsemi Héraðsskólans í Reykjanesi á þessu ári?