Ferill 366. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 366 . mál.


585. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um sölu á veiðiheimildum.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



    Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ákvæðum 11. gr. laga nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, um forkaupsrétt sveitarfélaga verði breytt á þann veg að sveitarfélög hafi í öllum tilvikum forkaupsrétt þegar um er að ræða sölu á veiðiheimildum skipa út úr byggðarlagi?