Ferill 371. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 371 . mál.


603. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um fjölda leiguliða og fullvirðisrétt.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



    Hve margir starfandi bændur eru leiguliðar og hve stórt hlutfall eru þeir af bændum landsins?
    Hve margir þeirra eru leiguliðar á ríkisjörðum og hve margir leigja af öðrum aðilum?
    Hve mikinn fullvirðisrétt hefur ríkið keypt af leiguliðum á ríkisjörðum og hve mikinn af öðrum leiguliðum?
    Hve hátt hlutfall er fullvirðisréttur sem keyptur hefur verið af leiguliðum af þeim fullvirðisrétti sem keyptur hefur verið í heild?