Ferill 372. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 372 . mál.


604. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um ferðakostnað lækna.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



    Hvaða reglur gilda um greiðslur á ferðakostnaði lækna?
    Hve miklum upphæðum er varið samanlagt til þessa þáttar á hverju ári?
    Hver er hámarksgreiðsla til hvers læknis?
    Njóta einhverjar aðrar starfsstéttir heilbrigðisgeirans svipaðra hlunninda?