Ferill 23. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 23 . mál.
609. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um sparisjóði, nr. 87 4. júlí 1985.
(Eftir 2. umr., 19. mars.)
1. gr.
40. gr. laganna orðast svo:
Eigið fé sparisjóðs, eins og það er skilgreint skv. 2. mgr., skal á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svarar 8% af áhættugrunni, þ.e. heildareignum sparisjóðsins og liðum utan efnahagsreiknings samkvæmt nánari reglum um mat á áhættugrunni til útreiknings á eiginfjárhlutfalli sparisjóða sem Seðlabanki Íslands setur. Eiginfjárkrafan skv. 1. málsl. skal gilda um samstæðureikning, sbr. 41. gr.
Við útreikning á eiginfjárhlutfalli, sbr. 1. mgr., skal eigið fé samsett af tveimur þáttum, eiginfjárþætti A og eiginfjárþætti B, sbr. 3. og. 4. mgr. Eiginfjárþáttur A skal nema að lágmarki helmingi eigin fjár.
Eiginfjárþáttur A telst vera:
Eiginfjárþáttur B telst vera víkjandi lán sem sparisjóður tekur gegn útgáfu sérstakrar skuldaviðurkenningar þar sem skýrt er kveðið á um að endurgreiðslutími lánsins sé eigi skemmri en fimm ár og að við gjaldþrot sparisjóðsins eða slit hans fáist það endurgreitt á eftir öllum öðrum kröfum á hendur sparisjóðnum en endurgreiðslu stofnfjár. Þegar fimm ár eru eftir af lánstímanum skal lánið reiknast niður um 20% fyrir hvert ár sem líður af þessum fimm árum nema um sé að ræða lán sem greiðist niður með jöfnum afborgunum á tímabilinu. Heildarfjárhæð víkjandi lána má hæst nema 50% af eiginfjárþætti A.
Frá eigin fé skv. 2. mgr. skal draga bókfært virði á eignarhlutum og víkjandi lánum sparisjóðs hjá félögum, sem falla undir skilgreiningu 1. mgr. 32. gr., öðrum en þeim sem teljast vera dótturfélög og reiknast með í samstæðureikningi sparisjóðs og dótturfélaga, sbr. eftirfarandi:
Heimilt er ráðherra að ákveða að aðrir efnahagsliðir en greindir eru í 3. og 4. mgr. skuli teljast með eigin fé að fengnum tillögum bankaeftirlitsins.
Ákvæði þessarar greinar skulu einnig gilda fyrir Lánastofnun sparisjóðanna, sbr. XII. kafla.
2. gr.
Við 1. mgr. 41. gr. laganna bætast þrír nýir málsliðir svohljóðandi: Þegar um er að ræða sparisjóð sem á það stóran hlut í félagi að það síðarnefnda telst dótturfélag, sbr. 2. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög, skal semja samstæðureikning fyrir félagasamstæðuna. Ákvæðið um skyldu til að semja samstæðureikning gildir þó ekki þegar um er að ræða félag sem sparisjóður hefur eignast tímabundið hlut í annaðhvort til að tryggja fullnustu kröfu eða vegna endurskipulagningar þess félags. Ráðherra er heimilt að veita undanþágu frá skyldu til að semja samstæðureikning.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Sparisjóður skal uppfylla ákvæði um eigið fé skv. 1. gr. eigi síðar en í árslok 1992.
Ákvæði 2. gr. um samstæðureikning fyrir félagasamstæðu tekur gildi frá og með reikningsárinu 1992.