Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. –
380
. mál.
618. Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um afleiðingar sumarlokunar sjúkrahúsa.
Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.
Hefur upplýsingum um fyrirhugaðar sumarlokanir á sjúkrahúsum verið safnað saman á vegum heilbrigðisráðuneytisins?
Hefur verið lagt mat á hvað lokanir sjúkrastofnana og einstakra deilda hafi í för með sér fyrir önnur sjúkrahús sem þurfa að taka við auknu álagi vegna þessara lokana?
Hefur sérstaklega verið fjallað um lokanir fæðingardeilda og hvernig skuli mæta þeim?
Er fyrirhugað að endurskoða áætlanir um niðurskurð fjár til einstakra sjúkrastofnana ef þær verða fyrir auknu álagi vegna lokana á öðrum sjúkrastofnunum?