Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 433 . mál.
691. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um inntöku nýnema í framhaldsskóla og háskóla.
Frá Hermanni Níelssyni.
Er fullvíst að allir nýstúdentar, sem sótt hafa um skólavist við Háskóla Íslands, geti hafið nám næsta skólaár?
Verða einhverjar hömlur settar á inntöku nemenda í mennta- og fjölbrautaskóla umfram það sem verið hefur?