Ferill 438. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 438 . mál.


696. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Lóranstöðina á Gufuskálum á Snæfellsnesi.

Frá Sturlu Böðvarssyni.



    Er afráðið að leggja niður starfsemi Lóranstöðvarinnar á Gufuskálum og hætta þjónustu við skip og báta?
    Hefur verið tryggt að annað sambærilegt staðsetningarkerfi komi í stað lórankerfisins?
    Hvernig verða mannvirki og byggingar Lóranstöðvarinnar nýttar ef starfsemi stöðvarinnar verður hætt?