Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 442 . mál.


700. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991–92.)



1. gr.

    Við 6. gr. laganna bætist nýr töluliður sem orðast svo:
    Í hlutabréfum í fyrirtækjum sem hafa skráð kaup- og sölugengi á markaði hjá viðurkenndu verðbréfaþingi eða a.m.k. tveimur verðbréfafyrirtækjum. Þó skal eigi verja meira en 10% af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins til hlutabréfakaupa. Árleg hlutabréfakaup samkvæmt ákvæðum þessa töluliðar teljast einvörðungu kaup umfram sölu á hlutabréfum. Eigi er sjóðnum heimilt að eiga meira en 10% af hlutafé í hverju fyrirtæki. Heildarhlutabréfaeign sjóðsins skal á hverjum tíma ekki vera meiri en nemur 15% af hreinni eign til greiðslu lífeyris.

2. gr.

    6. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:
    Dragist lengur en 20 daga fram yfir gjalddaga að iðgjöldum sé skilað er stjórn sjóðsins heimilt að innheimta vangoldin iðgjöld með vanskilavöxtum, sem Seðlabanki Íslands heimilar innlánsstofnunum hæsta að taka, frá gjalddaga.

3. gr.

    Við 3. mgr. 9. gr. laganna bætast eftirfarandi málsliðir: Frá 1. janúar 1992 skal í stað grundvallarlauna miða við grundvallarfjárhæð sem tengist lánskjaravísitölu þeirri sem Seðlabanki Íslands auglýsir með heimild í 39. gr. laga nr. 13/1979, með síðari breytingum. Grundvallarfjárhæð í janúar 1992 er 45.602 kr. miðað við lánskjaravísitölu sem gildir í þeim mánuði og tekur fjárhæðin sömu hlutfallsbreytingum í mánuði hverjum og lánskjaravísitalan. Verði gerð breyting á grundvelli eða útreikningi lánskjaravísitölu skal ráðherra, að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins, ákveða hvernig stigagrundvelli og breytingum hans skuli háttað þaðan í frá.

4. gr.

    14. gr. laganna orðast svo:
    Lífeyrir, sem úrskurðaður hefur verið skv. 10., 11. og 12. gr., skal taka sömu hlutfallsbreytingum í mánuði hverjum og lánskjaravísitala sú sem Seðlabanki Íslands auglýsir með heimild í 39. gr. laga nr. 13/1979, með síðari breytingum. Verði gerð breyting á grundvelli eða útreikningi lánskjaravísitölu skal ráðherra, að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins, ákveða með hvaða hætti lífeyrir samkvæmt fyrrnefndum greinum skuli verðtryggður þaðan í frá.

5. gr.

    16. gr. laganna orðast svo:
    Stjórn sjóðsins er heimilt að endurgreiða erlendum ríkisborgara, sem flyst úr landi, iðgjaldahluta launþega sem hann hefur greitt sjóðnum, enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. Sjóðurinn skal endurgreiða iðgjöld sem honum eru greidd vegna starfsmanna sem ekki hafa náð 16 ára aldri eða þeirra sem náð hafa 75 ára aldri.

6. gr.

    21. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð, að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins, að lífeyrisréttindum þeim, sem um getur í 10.–13. gr., skuli breytt til samræmis við lífeyrisréttindi samkvæmt reglugerðum þeirra lífeyrissjóða sem starfa innan þeirra sambanda lífeyrissjóða sem aðild eiga að stjórn sjóðsins.
    Ráðherra er enn fremur heimilt að setja nánari ákvæði um framkvæmd þessara laga með reglugerð.

7. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


         Frumvarp þetta var samið að frumkvæði stjórnar Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, en í henni eiga sæti fulltrúar lífeyrissjóðasambandanna, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og fulltrúar ríkisins. Nú eiga sæti í stjórninni: Gunnar J. Friðriksson, tilnefndur af Sambandi almennra lífeyrissjóða, Gunnar Gunnarsson, tilnefndur af Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, Hrafn Magnússon, tilnefndur af Sambandi almennra lífeyrissjóða, Margeir Daníelsson, tilnefndur af Landssambandi lífeyrissjóða, Már Guðmundsson, formaður, skipaður án tilnefningar, Snær Karlsson, skipaður án tilnefningar, og Þorgeir Eyjólfsson, tilnefndur af Landssambandi lífeyrissjóða.          
    Meginefni frumvarpsins er eftirfarandi:
    Lagt er til að sjóðurinn fái heimild til að fjárfesta í hlutabréfum í fyrirtækjum. Er þetta til samræmis við þær heimildir sem flestir lífeyrissjóðir innan lífeyrissjóðasambandanna nú hafa. Til að tryggja að sjóðurinn taki ekki of mikla áhættu á þessu sviði er gert ráð fyrir að ekki sé varið meira en 10% af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins í þessu skyni, að sjóðurinn eigi ekki meira en 10% í hverju einstöku fyrirtæki og að heildarhlutabréfaeign sjóðsins verði ekki á hverjum tíma meiri en sem nemur 15% af hreinni eign sjóðsins til greiðslu lífeyris. Ef miðað er við reikninga sjóðsins á árinu 1991 fela þessi hlutföll í sér að sjóðurinn geti keypt hlutafé fyrir u.þ.b. 110 m.kr. á ári en að heildareign hans á hlutabréfum geti ekki orðið hærri en u.þ.b. 880 m.kr. Til að tryggja að sjóðurinn kaupi hlutabréf á markaðskjörum og að þau séu auðseljanleg er sett það skilyrði að viðkomandi bréf hafi skráð kaup- og sölugengi á markaði hjá viðurkenndu verðbréfaþingi eða a.m.k. tveimur verðbréfafyrirtækjum.
    Lagt er til að stigaútreikningur sjóðsins taki frá og með byrjun árs 1992 mið af lánskjaravísitölu. Þannig verði í stað grundvallarlauna miðað við grundvallarfjárhæð sem verði 45.602 kr. í janúar 1992 og taki mánaðarlegum breytingum með lánskjaravísitölu þeirri sem Seðlabanki Íslands reiknar út. Þessi breyting er gerð til samræmis við sams konar breytingu sem gerð var á lögum um eftirlaun aldraðra í lok síðasta árs. Á undanförnum árum hefur Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda miðað stigaútreikning sinn við grundvallarlaun þau sem umsjónarnefnd eftirlauna reiknaði út og notuð hafa verið af lífeyrissjóðum innan Sambands almennra lífeyrissjóða. Eðlilegast er því að ákvæðum laganna verði breytt með ofangreindum hætti.
    Lagt er til að verðtrygging á lífeyrisgreiðslum sjóðsins verði lögbundin. Lagt er til að verðtrygging lífeyris miðist við lánskjaravísitölu þá sem Seðlabanki Íslands reiknar út. Sjóðurinn hefur frá upphafi greitt verðtryggðan lífeyri. Nær allar eignir sjóðsins eru verðtryggðar. Á árinu 1991 náði sjóðurinn 7,8% raunávöxtun á eignir sínar miðað við lánskjaravísitölu. Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt á fjárhagsstöðu sjóðsins í árslok 1988 þurfti sjóðurinn að ná 2,92% nettóávöxtun umfram hækkun launa á eignir sjóðsins að óbreyttu iðgjaldi og reglum um lífeyrisréttindi til þess að eignir stæðu undir framtíðarskuldbindingum hans. Miðað við þá breytingu, sem hér er lögð til á viðmiðun stigaútreiknings, er því fyrirsjáanlegt að sjóðurinn muni standa undir því að greiða verðtryggðan lífeyri hér eftir sem hingað til. Því er eðlilegt að lögfesta þá reglu. Það er einnig í samræmi við þær tillögur sem felast frumvarpi til laga um starfsemi lífeyrissjóða sem verið hefur til umfjöllunar.
    Lagt er til að ráðherra geti með reglugerð og að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins breytt lífeyrisákvæðum laganna sem er að finna í 10.–13. gr. Þegar lögin um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda voru sett tóku lífeyrisákvæði þeirra mið af þáverandi samræmdri reglugerð SAL-sjóða. Reglugerðir SAL-sjóðanna hafa síðan breyst með ýmsum hætti, en lífeyrisákvæði laganna um Söfnunarsjóðinn hafa staðið óbreytt. Nú stendur yfir endurskoðun á vegum lífeyrissjóðasambandanna á maka- og örorkulífeyrisákvæðum í reglugerðum lífeyrissjóðanna. Gert er ráð fyrir að hún muni leiða til breytinga á þessum lífeyrisákvæðum í reglugerðum allmargra sjóða. Eðlilegt er að lífeyrisréttindi hjá Söfnunarsjóðnum taki annars vegar mið af því sem tíðkast almennt hjá lífeyrissjóðunum í landinu og hins vegar af stöðu sjóðsins. Því kann að reynast nauðsynlegt að breyta lífeyrisréttindum hjá sjóðnum öðru hvoru. Því er lagt til að ráðherra fái ofangreinda heimild, en flestir lífeyrissjóðir starfa samkvæmt reglugerðum staðfestum af fjármálaráðuneytinu.
    Lagðar eru til minni háttar tæknilegar breytingar, svo sem varðandi töku dráttarvaxta og endurgreiðslur iðgjalda til erlendra ríkisborgara.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Hér er lagt til að sjóðurinn fái heimild til að fjárfesta í hlutabréfum með tilgreindum takmörkunum.

Um 2. gr.


    Frestur til að greiða iðgjöld án dráttarvaxta er styttur úr 30 dögum í 20 og tekin eru af tvímæli um að dráttarvextir reiknist frá gjalddaga, en gjalddagi iðgjalda hvers mánaðar er 10. næsta mánaðar.

Um 3. gr.


    Hér er lagt til að grundvallarfjárhæð, sem tengist lánskjaravísitölu þeirri sem Seðlabanki Íslands reiknar út, verði grundvöllur stigaútreiknings. Þetta er í samræmi við nýgerðar breytingar á lögum um eftirlaun aldraðra. Jafnframt eru gerðar tillögur um hvernig skuli með farið ef breytingar verða gerðar á grundvelli eða útreikningi lánskjaravísitölu. Ákvæði þetta á einnig við ef útreikningi lánskjaravísitölu er hætt af einhverjum orsökum.

Um 4. gr.


    Í greininni er lagt til að ellilífeyrir skv. 10. gr., örorkulífeyrir skv. 11. gr. og makalífeyrir skv. 12. gr. verði verðtryggður miðað við lánskjaravísitölu eftir að hann hefur verið úrskurðaður. Jafnframt er lagt til hvernig með skuli farið ef breyting verður gerð á lánskjaravísitölunni og þar er um sams konar reglu að ræða og í 3. gr.

Um 5. gr.


    Í grein þessari er gert ráð fyrir því að sjóðurinn endurgreiði öll iðgjöld sem honum eru greidd eftir að maður hefur náð 75 ára aldri. Þar sem ekki eru reiknuð stig vegna þessara iðgjalda þykir eðlilegt að þau séu endurgreidd. Samkvæmt núgildandi reglum endurgreiðir sjóðurinn aðeins launþegahlutann í slíkum tilvikum. Jafnframt verður að telja það eðlilega reglu að iðgjöld ungmenna undir 16 ára aldri séu endurgreidd. Ekki er um efnislega breytingu að ræða varðandi endurgreiðslu iðgjalda til erlendra ríkisborgara.

Um 6. gr.


    Hér er lagt til að ráðherra geti ákveðið með reglugerð að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins að gera breytingar á lífeyrisréttindum skv. 10.–13. gr. laganna til samræmis við lífeyrisréttindi samkvæmt reglugerðum þeirra lífeyrissjóða sem starfa innan Sambands almennra lífeyrissjóða og Landssambands lífeyrissjóða. Alla jafna mun stjórn sjóðsins hafa frumkvæði að slíkum breytingum og ekki er gert ráð fyrir að ráðherra geti ákveðið slíkar breytingar nema fyrir liggi tillögur frá sjóðnum. Jafnframt er í greininni almenn reglugerðarheimild eins og er í núgildandi lögum.

Um 7. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.