Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 451 . mál.


709. Frumvarp til

laga

um Skálholtsskóla.

(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991–92.)



1. gr.


    Skálholtsskóli er kirkjuleg menningar- og menntastofnun sem starfar á vegum þjóðkirkju Íslands á grunni fornrar skólahefðar í Skálholti og norrænnar lýðháskólahefðar.
     Kirkjuráð ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri skólans fyrir hönd þjóðkirkju Íslands. Gerður skal samningur um þátttöku ríkissjóðs í rekstri hans.

2. gr.


    Markmið Skálholtsskóla er að efla tengsl kirkju og þjóðlífs og stuðla að sem víðtækustum áhrifum kristinnar trúar og kristinnar menningar í íslensku þjóðlífi.
     Skólinn skal leitast við að efla þjóðkirkjuna, m.a. með fræðslu starfsmanna hennar.

3. gr.


    Skólinn skal einkum starfa á eftirgreindum sviðum:
    Guðfræðisviði.
    Kirkjutónlistarsviði.
    Fræðslusviði.
     Sviðin skulu nánar skilgreind í samþykktum skólans sem kirkjuráð staðfestir að fengnum tillögum skólaráðs.

4. gr.


    Kirkjuráð skipar skólaráð Skálholtsskóla til fjögurra ára í senn. Skólaráðið fer með stjórn skólans í umboði kirkjuráðs.
     Í ráðið skal skipa einn mann samkvæmt tilnefningu Háskóla Íslands, einn samkvæmt tilnefningu sóknarnefndar Skálholtssóknar og einn án tilnefningar. Enn fremur skulu skipaðir í ráðið þrír menn til viðbótar sem auk setu í ráðinu skulu hafa sérstaka tilsjón með hinum þremur sviðum skólans. Einn þeirra skal skipaður samkvæmt tilnefningu guðfræðideildar Háskóla Íslands og hafa tilsjón með starfi á guðfræðisviði, annar samkvæmt tilnefningu Collegium Musicum, Samtaka um tónlistarstarf í Skálholtskirkju, og hafa tilsjón með starfi á kirkjutónlistarsviði og sá þriðji samkvæmt tilnefningu biskups Íslands og hafa tilsjón með starfi á fræðslusviði. Varamenn í skólaráð skulu skipaðir á sama hátt og aðalmenn.
     Vígslubiskup Skálholtsstiftis er formaður Skálholtsskólaráðs.

5. gr.


    Skólaráð mótar í samráði við forstöðumann, sbr. 6. gr., langtímastefnu skólans og gerir áætlanir til a.m.k. þriggja ára í senn um starfsemi á hverju sviði skólans að fengnum tillögum fulltrúa sviðanna í skólaráði.
     Ráðið gerir fyrir hvert almanaksár heildarfjárhagsáætlun fyrir skólann og skiptir því fé sem hann hefur til ráðstöfunar í samræmi við hana.
     Ráðið skal árlega gefa kirkjuráði skýrslu um starfsemi skólans og fjárhald.

6. gr.


    Kirkjuráð ræður forstöðumann Skálholtsskóla til allt að sex ára í senn að fengnum tillögum skólaráðs og setur honum erindisbréf.
     Forstöðumaður stjórnar daglegum rekstri skólans. Hann annast fjárreiður skólans og ber ábyrgð á rekstri hans og fjárhaldi gagnvart skólaráði. Hann ræður starfsmenn skólans í samráði við skólaráð.
     Forstöðumaður hefur umsjón með áætlanagerð um skólastarfið og ber ábyrgð á að áætlunum, sem skólaráð hefur samþykkt, sé fylgt. Hann undirbýr ásamt fulltrúum sviðanna í ráðinu tillögur að þriggja ára áætlunum um starfsemi á hverju sviði fyrir sig. Hann gerir enn fremur ásamt fulltrúa hvers sviðs nánari áætlun um fjárhagslegan og faglegan rekstur sviðsins fyrir eitt ár í senn sem lögð skal fyrir skólaráð til samþykktar eigi síðar en 1. nóvember fyrir næsta almanaksár.
     Forstöðumaður situr fundi skólaráðs með málfrelsi og tillögurétti.
     Hann er fulltrúi annarra starfsmanna skólans gagnvart ráðinu og skal tala máli þeirra þar.

7. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög um Skálholtsskóla, nr. 31 12. maí 1977.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta og athugasemdir með því er samið af nefnd sem kirkjumálaráðherra, Þorsteinn Pálsson, skipaði 27. maí 1991 í samráði við biskup Íslands, herra Ólaf Skúlason, og menntamálaráðherra, Ólaf G. Einarsson, „til að huga að málefnum Skálholtsstaðar og gera tillögur þar að lútandi“, eins og segir í skipunarbréfi nefndarinnar. Þar segir enn fremur að nefndinni sé ætlað það hlutverk að „kynna sér starfsemi Skálholtsskóla og gera tillögur um framtíðarskólarekstur á staðnum“.
     Í nefndina voru skipuð: Ásdís Sigurjónsdóttir deildarsérfræðingur, skipuð samkvæmt tilnefningu fjármálaráðherra, sr. Jón Einarsson prófastur, skipaður samkvæmt tilnefningu kirkjuráðs, sr. Jónas Gíslason, vígslubiskup Skálholtsstiftis, skipaður samkvæmt tilnefningu biskups, sr. Sigurður Sigurðarson sóknarprestur, skipaður samkvæmt tilnefningu menntamálaráðherra, og Lára Margrét Ragnarsdóttir alþingismaður, sem jafnframt var skipuð formaður nefndarinnar. Ritari nefndarinnar er Anna Guðrún Björnsdóttir, deildarstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
     Skálholtsskóli hinn nýi tók til starfa árið 1972 undir stjórn sr. Heimis Steinssonar sem var rektor skólans fyrstu tíu árin. Hann og kona hans, Dóra Þórhallsdóttir, lögðu grunninn að þessari nýju menntastofnun kirkjunnar. Fyrstu tvö árin fór starfsemi skólans að mestu leyti fram í Sumarbúðum þjóðkirkjunnar (Skálholtsbúðum), en frá árinu 1974 hefur skólinn starfað í eigin húsnæði sem tekið var formlega í notkun við hátíðlega vígsluathöfn 6. október það ár.
     Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup tók fyrstu skóflustunguna að Skálholtsskóla á vígsludegi Skálholtskirkju 21. júlí árið 1963 og var hann öðrum mönnum fremur í fylkingarbrjósti um byggingu skólans, stofnun hans og starfrækslu. Skólabyggingin var að miklu leyti fjármögnuð fyrir söfnunarfé Skálholtsvina og lýðháskólamanna á Norðurlöndum. Munaði þar mest um norska Íslandsvininn sr. Harald Hope.
     Alla tíð hefur skólinn starfað í þröngum og ónógum húsakynnum, enda er byggingu skólahússins ekki nærri lokið og hefur ekkert miðað í byggingarmálum hans frá árinu 1974. Brýnt er að ljúka byggingu skólans á næstu árum svo að hann geti verið sú menningarmiðstöð og gegnt því menningarhlutverki sem Skálholti sómir og hæfir.
     Fyrstu árin var rekstur skólans kostaður af naumum tekjum Kristnisjóðs og var honum sniðinn þröngur stakkur fjárhagslega. Með tilkomu laga um Skálholtsskóla, nr. 31/1977, varð breyting á. Segja má að frá þeim tíma hafi rekstur skólans verið sæmilega tryggður og að fjárveitingavaldið hafi sýnt starfinu skilning.
     Í lögunum er kveðið svo á að Skálholtsskóli skuli starfa í „anda norrænna lýðháskóla“. Þannig var ákveðið að skólinn skyldi starfa sem lýðháskóli er tæki mið af sambærilegum skólum á Norðurlöndum og hefði svipað námsframboð. Jafnframt er í lögunum lögð rík áhersla á að skólinn skuli vinna „að varðveislu þjóðlegrar menningararfleifðar Íslendinga“ og starfa á grundvelli kristinnar kirkju. Frá upphafi hefur skólinn verið opinn fyrir helstu straumum í menningar og félagslegum efnum samtíðarinnar og þá ekki síst á vettvangi kirkjunnar. Hefur það m.a. komið fram í hinum fjölmörgu og merku ráðstefnum og námskeiðum sem skólinn hefur staðið fyrir.
     Þegar Skálholtsskóli hóf göngu sína fyrir tæpum 20 árum hafði fjölbrautaskólunum enn ekki verið komið á í landinu, en voru í undirbúningi. Ætla má að tilkoma fjölbrautaskólanna og hið mikla námsframboð þeirra hafi stuðlað að því að minni þörf var fyrir starfsemi lýðháskóla en ætlað var þegar hann var stofnaður, svo og það að lýðháskóli brautskráir ekki fólk með nein próf eða réttindi er opna þeim sjálfkrafa dyr að öðrum skólum.
     Vegna þessara breyttu viðhorfa og þróunar í skólamálum hefur orðið gjörtæk breyting á rekstri Skálholtsskóla síðustu árin. Skólinn starfar ekki lengur sem hefðbundinn lýðháskóli innan þess ramma sem lögin frá 1977 marka honum. Hann hefur meira færst í það form að vera kirkjuleg menningar- og fræðslustofnun. Hefur starfsemin síðustu árin einkum verið í formi ráðstefnuhalds og námskeiða sem hafa verið vel sótt.
    Miðað við aðstæður í þjóðfélaginu í dag og ríkjandi skólastefnu virðist rekstur hefðbundins lýðháskóla ekki vera raunhæfur kostur. Með tilliti til þess telur nefndin óhjákvæmilegt að skólanum verði markaður nýr farvegur með nýjum lögum. Með frumvarpi þessu hefur nefndin leitast við að laga starfsemi skólans að þörfum samtíðarinnar og þá einkum að þörfum kirkjunnar. Er lagt til að Skálholtsskóli heyri alfarið undir kirkjuna, en ríkið taki þátt í kostnaði af rekstri hans samkvæmt sérstökum samningi þar að lútandi sem er fylgiskjal með frumvarpi þessu.
     Við samningu frumvarpsins hefur nefndin tekið mið af því sem best hefur gefist í starfi skólans á undanförnum árum. Aflaði nefndin sér upplýsinga um starfsemi skólans, m.a. komu á fund nefndarinnar dr. Sigurður Árni Þórðarson, fráfarandi rektor skólans, og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, fulltrúi biskups í skólanefnd. Gerðu þeir grein fyrir skólastarfi á undanförnum árum og hugmyndum sínum um framtíðarskólastarf.
    Frá árinu 1975 hafa verið haldnir tónleikar í Skálholtskirkju á hverju sumri undir stjórn og handleiðslu Helgu Ingólfsdóttur semballeikara. Hafa þeir vakið verðskuldaða athygli, bæði hérlendis og erlendis, notið mikillar aðsóknar og vaxandi vinsælda og verið einn helsti vaxtarbroddurinn á Skálholtsstað síðastliðin ár. Hafa áhugamenn um tónlistarstarf í Skálholtskirkju stofnað með sér samtök, Collegium Musicum, sem Helga gegnir formennsku fyrir. Komu fulltrúar samtakanna á fund nefndarinnar og skýrðu hugmyndir sínar um framtíð kirkjutónlistarstarfs í Skálholti.
     Í ljósi þess mikla og góða tónlistarstarfs, sem unnið hefur verið í Skálholti á undanförnum árum og með hliðsjón af þörfum kirkjunnar á sviði tónlistarmála, er lagt til að starfrækt verði sérstakt kirkjutónlistarsvið við skólann og samtökin Collegium Musicum hafi rétt til að tilnefna fulltrúa í skólaráð.
     Einnig er gert ráð fyrir því að við skólann verði starfrækt guðfræðisvið og fræðslusvið svo sem nánar verður gerð grein fyrir hér á eftir og hafi guðfræðideild Háskóla Íslands og biskup Íslands rétt til að tilnefna menn í skólaráð sem sérstaka fulltrúa þessara sviða.
     Í frumvarpinu er lögð áhersla á að skólinn starfi á grundvelli skipulegrar stefnumótunar og gerðar séu áætlanir um skólastarf með reglubundnum hætti. Jafnframt hefur þess verið gætt að kirkjan hafi svigrúm til þess að móta starfsemi skólans.
     Að lokum er rétt að taka fram að biskup Íslands, herra Ólafur Skúlason, sem er formaður skólanefndar Skálholtsskóla, og kirkjuráð fengu frumdrög nefndarinnar til skoðunar og gerðu nokkrar athugasemdir við þau sem nefndin hefur leitast við að koma til móts við.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í greininni er lögð áhersla á að Skálholtsskóli sé fyrst og fremst kirkjuleg menningar- og menntastofnun. Jafnframt er höfðað til fornrar skólahefðar í Skálholti og gert ráð fyrir að starfsemi skólans taki áfram nokkurt mið af norrænni lýðháskólahefð þó að ekki verði lengur um hefðbundinn lýðháskóla að ræða.
     Þá tekur greinin til þess að skólinn verði ekki lengur sjálfseignarstofnun, heldur heyri hann stjórnunarlega og fjárhagslega undir kirkjuráð og er þá höfð hliðsjón af lögum um heimild handa ríkisstjórninni til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað, nr. 32/1963, sbr. og 5. mgr. 8. gr. laga nr. 31/1977.
     Ekki er lagt til að bein ákvæði verði áfram í lögum um skyldur ríkissjóðs til að standa undir rekstrarkostnaði skólans, sbr. 8. gr. laga nr. 31/1977. Hins vegar er í lokamálslið greinarinnar kveðið á um að gerður skuli samningur um þátttöku ríkissjóðs í rekstri skólans og er samningurinn fylgiskjal með frumvarpinu. Á þessi skipan sér fordæmi í samskiptum og stuðningi ríkisins við suma einka- og sérskóla. Í 7. gr. samningsins er ákvæði um endurskoðun hans. Telur nefndin eðlilegt verði frumvarpið að lögum að þau verði endurskoðuð um leið og samningurinn þar sem hann er mikilvæg forsenda frumvarpsins.

Um 2. gr.


    Í greininni er kveðið á um markmið Skálholtsskóla og lögð áhersla á að hann skuli leitast við að styðja og efla þjóðkirkjuna, m.a. með fræðslu starfsmanna hennar, svo að hún megi betur þjóna síbreytilegum og vaxandi þörfum kirkjulegs starfs í samfélaginu.

Um 3. gr.


    Til að vinna að markmiði sínu skv. 2. gr. starfrækir Skálholtsskóli eftirtalin þrjú svið er grein þessi tekur til:
     Guðfræðisvið. Gert er ráð fyrir að þar geti farið fram endurmenntunarnámskeið fyrir presta og aðra starfsmenn kirkjunnar og einnig hluti af starfsþjálfun guðfræðikandídata, sbr. 16. gr. laga um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands, nr. 62/1990. Enn fremur námskeið á vegum guðfræðideildar Háskóla Íslands og Guðfræðistofnunar, svo og margs konar námsstefnur og ráðstefnur um málefni kristinnar trúar og kirkju.
     Kirkjutónlistarsvið. Undir þetta svið heyra sumartónleikarnir í Skálholtskirkju og ýmiss konar samstarf og tónlistariðkun í tengslum við þá. Enn fremur organista- og kóranámskeið á vegum söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, tónlistariðkun og æfingabúðir fyrir kirkjukóra og barnakóra, sumartónbúðir barna og námskeið á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar og guðfræðideildar. Með starfsemi kirkjutónlistarsviðsins skal almennt að því stefnt að það megi fegra og efla tónlistarlíf í íslenskum kirkjum.
     Fræðslusvið. Á þessu sviði er gert ráð fyrir margs konar námskeiðum og fræðslu, m.a. í samvinnu við fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar og fleiri aðila, t.d. námskeiðum í trúfræðslu, kyrrðardagahaldi o.fl. Gert er ráð fyrir að undir þetta svið heyri umfjöllun um þjóðlegan menningararf Íslendinga, bókmenntir, fornar og nýjar, kirkjulist og listir yfirleitt frá ýmsum tímum. Enn fremur ráðstefnur á sviði þjóðfélags- og menningarmála, félagsmálanámskeið og ráðstefnur á vegum félagsmálasamtaka. Einnig starfsemi sem tengist norrænni lýðháskólahefð og norrænu samstarfi á því sviði.
     Samkvæmt 2. mgr. greinarinnar skulu sviðin nánar skilgreind og útfærð í sérstökum samþykktum um skólann er heyra til innri samþykkta um starf hans.
     Af ofangreindu má ljóst vera að gert er ráð fyrir að starfsemi skólans verði afar víðfeðm og viðfangsefnin mörg. Starfsemin getur verið breytileg frá ári til árs og hefur skólinn mikið frelsi og svigrúm í þeim efnum.

Um 4. gr.


    Greinin fjallar um stjórn skólans og gerir ráð fyrir gjörtækri breytingu frá því sem er í gildandi lögum, enda er sú skipan miðuð við lýðháskólafyrirkomulag. Gert er ráð fyrir að stjórn skólans sé í höndum sjö manna skólaráðs undir forystu vígslubiskups sem hefur yfirumsjón með starfi þar í umboði biskups og kirkjuráðs. Vegna ábyrgðar kirkjuráðs þykir rétt að það skipi að öðru leyti fulltrúa í skólaráð, en þó fimm af sex samkvæmt tilnefningu þeirra aðila er greinin tekur til. Rétt þykir að guðfræðideild Háskóla Íslands, Collegium Musicum og biskup Íslands tilnefni fulltrúa í skólaráð sem beri nokkra ábyrgð á rekstri hvers sviðs fyrir sig. Þá þykir einboðið að heimamenn í Skálholtssókn eigi fulltrúa í ráðinu og tvímælalaust er ávinningur að því að Háskóli Íslands tilnefni fulltrúa í skólaráð. Það styrkir og eflir tengsl milli Skálholts og Háskólans.

Um 5. gr.


    Greinin kveður á um skyldur skólaráðs.
     Gert er ráð fyrir að skólaráð móti með skipulögðum hætti langtímastefnu skólans þannig að markmiðum hans verði náð. Skólaráð á að hafa samráð við forstöðumann í þessum efnum. Skólaráð á enn fremur að gera áætlanir til a.m.k. þriggja ára í senn um starfsemi á hverju sviði skólans. Fulltrúi hvers sviðs í ráðinu og forstöðumaður skulu undirbúa þær og enn fremur nánari áætlun til eins árs, sbr. 3. mgr. 6. gr. Eðlilegt er að fulltrúar sviðanna hafi samráð við umbjóðendur sína í þessu sambandi þannig að víðtæk og virk tengsl séu milli stjórnar skólans og þeirra sem að starfssviðunum standa og tilnefna fulltrúa í skólaráð.
     Eðlilegt er að í samþykktum skólans, sbr. 3. gr., sé nánar kveðið á um starfsreglur og fundarsköp skólaráðs.

Um 6. gr.


    Greinin fjallar um forstöðumann Skálholtsskóla, ráðningu hans, starfssvið og ábyrgð, bæði faglega og fjárhagslega, svo og samstarf hans við skólaráð. Gert er ráð fyrir því að nánar verði kveðið á um starfsskyldur forstöðumanns í erindisbréfi sem kirkjuráð setji honum.

Um 7. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal.


Dóms- og kirkjumálaráðherra, menntamálaráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
og
biskup Íslands f.h. kirkjuráðs vegna þjóðkirkju Íslands, gera með sér svofellt

s a m k o m u l a g



um rekstur Skálholtsskóla:

1. gr.


    Til reksturs Skálholtsskóla rennur árlega framlag úr ríkissjóði að fjárhæð 4 m.kr. miðað við áætlað janúarverðlag fjárlaga 1992 (framfærsluvísitala 160,6 miðað við 100 í maí 1988).

2. gr.


    Auk þess framlags, sem um getur í 1. gr., veitir ríkissjóður framlag til Skálholtsskóla sem árlega nemur sömu fjárhæð og skólinn fær frá öðrum aðilum en ríkissjóði árið þar á undan, þó aldrei hærri fjárhæð en 2 m.kr. á ári miðað við áætlað janúarverðlag fjárlaga 1992 (framfærsluvísitala 160,6 miðað við 100 í maí 1988).

3. gr.


    Framlag skv. 2. gr. verður ekki greitt á árinu 1992 enda fái skólinn 1,5 m.kr. í framlag á fjárlögum 1992 frá menntamálaráðuneyti til að ljúka skólaárinu 1991–1992 samkvæmt núgildandi lögum um Skálholtsskóla, nr. 31/1977. Framlag þetta verður tekið af ráðstöfunarfé menntamálaráðherra í fjárlögum 1992, fjárlagalið 02–998. Kirkjuráð f.h. þjóðkirkju Íslands ber að öðru leyti fjárhagslega ábyrgð á rekstri skólans skólaárið 1991–1992.

4. gr.


    Framlagi skv. 1. og 2. gr. skal verja til rekstrar Skálholtsskóla í samræmi við ný lög um Skálholtsskóla en frumvarp til þeirra, sem nefnd á vegum kirkjumálaráðherra hefur samið, mun verða lagt fram á Alþingi.

5. gr.


    Skálholtsskólaráð skal láta dóms- og kirkjumálaráðuneyti í té endurskoðaða ársreikninga skólans og önnur gögn sem ráðuneyti telur nauðsynlegt að fá í hendur.

6. gr.


    Ríkissjóður er ekki skuldbundinn til fjárframlaga vegna stofnkostnaðar. Ef veittir eru styrkir til stofnkostnaðar eru þeir ákvarðaðir á fjárlögum hverju sinni en skuldbinda ekki ríkissjóð til frekari styrkja.

7. gr.


    Samkomulag er um það að menntamálaráðherra og kirkjuráð, sbr. 5. mgr. 8. gr. laga um Skálholtsskóla, nr. 31/1977, afhendi húsnæði skólans í samræmi við lög nr. 32/1963.

8. gr.


    Samningur þessi gildir til 31. desember 1994 og skal koma til endurskoðunar við gerð fjárlaga fyrir árið 1995. Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í því skyni nefnd þriggja manna. Ráðherra skipar formann án tilnefningar, einn nefndarmanna skal skipaður samkvæmt tilnefningu kirkjuráðs og einn samkvæmt tilnefningu fjármálaráðuneytis.
     Samningurinn skal einnig koma til endurskoðunar ef einhver samningsaðila telur forsendur fyrir rekstri Skálholtsskóla breyttar og skal þá skipuð nefnd til þess á sama hátt og kveðið er á um í 1. mgr.

9. gr.


    Samningur þessi er undirritaður og samþykktur með fyrirvara um lögfestingu frumvarps til nýrra laga um Skálholtsskóla sem getið er í 3. gr.

Reykjavík, 27. mars 1992.



Þorsteinn Pálsson,

Herra Ólafur Skúlason,

Ólafur G. Einarsson,


dóms- og kirkjumálaráðherra.

biskup.

menntamálaráðherra.



Friðrik Sophusson,


fjármálaráðherra.





Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um Skálholtsskóla.


    Skálholtsskóli var í fjárlögum 1991 undir menntamálaráðuneyti og var framlag til hans 6,2 m.kr.
     Frumvarpið gerir ráð fyrir að Skálholtsskóli verði stjórnunarlega og fjárhagslega á ábyrgð kirkjuráðs fyrir hönd þjóðkirkju Íslands, en gerður verði samningur um þátttöku ríkissjóðs í rekstri hans. Með samningnum er gert ráð fyrir að ríkið greiði 4 m.kr. grunnframlag til reksturs skólans. Að auki veitir ríkissjóður framlag til skólans sem árlega nemur sömu fjárhæð og skólinn fær frá öðrum aðilum en ríkissjóði árið þar á undan, þó aldrei hærri fjárhæð en 2 m.kr. á ári. Miðað er við verðlag fjárlaga 1992.
     Á þessu ári er þó einungis gert ráð fyrir 4 m.kr. vegna samningsins en því til viðbótar fær skólinn 1,5 m.kr. fjárveitingu frá menntamálaráðuneyti til að ljúka skólaárinu samkvæmt núgildandi lögum um Skálholtsskóla. Þetta leiðir ekki til kostnaðarauka fyrir ríkissjóð, miðað við fjárlög 1992, heldur verða 4 m.kr. greiddar af fjárveitingu til Skálholtsstaðar (06–790 610) og 1,5 m.kr. af ráðstöfunarfé menntamálaráðherra (02–998).