Ferill 458. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 458 . mál.
716. Frumvarp til
lagaum veitinga- og gististaði.
(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991–92.)
1. gr.
Lög þessi taka til sölu á gistingu, sölu veitinga, annarra en áfengis, og leigu á samkomusölum í atvinnuskyni, þar með talinni veitinga- og gistisölu ferðabænda.
Samgönguráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum.
2. gr.
Ábyrgðaraðili, einstaklingur eða félag, þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði til að stunda starfsemi samkvæmt lögum þessum:
Eigi má hefja starfsemi samkvæmt lögum þessum fyrr en skráning hefur farið fram skv. 3. gr.
3. gr.
Lögreglustjóri skráir starfsemi samkvæmt lögum þessum að fullnægðum skilyrðum skv. 2. gr., að fengnum nauðsynlegum staðfestingum frá sveitarstjórn, eldvarnaeftirliti og heilbrigðisnefnd og fer um eftirlit samkvæmt lögum og reglugerðum þar að lútandi. Taki nýr ábyrgðaraðili við starfsemi samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna það þegar til viðkomandi lögreglustjóra. Lögreglustjóri heldur skrá yfir skrásetta starfsemi samkvæmt lögum þessum.
Ef ábyrgðaraðili uppfyllir ekki lengur ofangreind skilyrði samkvæmt þessari grein og skv. 2. gr. ber lögreglustjóra að stöðva starfsemi hans.
4. gr.
Rekstraraðilar, er undir lög þessi falla, skulu veita Hagstofu Íslands upplýsingar samkvæmt nánari fyrirmælum í reglugerð. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar almennt til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni sem atvinnugrein.
5. gr.
Samgönguráðherra er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um menntun starfsfólks og um búnað og flokkun gisti- og veitingastaða sem lög þessi taka til. Um gerð slíkrar reglugerðar skal hafa samráð við Ferðamálaráð Íslands og önnur hagsmunasamtök í greininni. Samgönguráðherra getur samkvæmt tillögu stjórnar Ferðamálaráðs Íslands sett nánari ákvæði um skipulag og starfsemi samkvæmt lögum þessum í reglugerð.
6. gr.
Brot gegn lögum þessum og reglugerðum settum með heimild í þeim varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Með brot gegn lögunum skal fara að hætti opinberra mála.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. maí 1992. Þá falla úr gildi lög nr. 67/1985.
Ákvæði til bráðabirgða.
Gistihúsa- og veitingaleyfi samkvæmt ákvæðum laga nr. 67 28. júní 1985 skulu halda gildi sínu þann tíma sem þau kveða á um.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarpið felur í sér grundvallarbreytingar á löggjöf um veitinga- og gististaði, auk þess sem í því er gert ráð fyrir einföldun laganna. Helstu breytingarnar eru tvíþættar. Annars vegar hvað varðar skilyrði sem sett eru til að starfrækja megi veitinga- og gististaði, hins vegar hvað varðar flokkun veitinga- og gististaða. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að veitinga- eða gististaðir þurfi sérstakt leyfi til rekstrarins heldur þurfi að uppfylla almenn skilyrði skv. 2. og 3. gr. og á þann hátt fá skráningu hjá lögreglustjóra. Sú skráning er ótímabundin á meðan forsendur eru óbreyttar. Kemur sú skráning í stað tímabundinna leyfa samkvæmt gildandi lögum. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að flokkun veitinga- og gististaða sé bundin í lög heldur skuli kveðið á um hana í reglugerð. Það nýmæli er í frumvarpinu að við setningu reglugerðar um flokkun veitinga- og gististaða skal haft samráð við Ferðamálaráð Íslands og önnur hagsmunasamtök í greininni. Þá er gert ráð fyrir að nánari reglur um skipulag og starfsemi samkvæmt frumvarpinu verði settar samkvæmt tillögum stjórnar Ferðamálaráðs Íslands og tryggir það í senn aukinn sveigjanleika reglna um rekstrarumhverfi greinarinnar og áhrif hagsmunaaðila á ákvarðanatöku í þeim efnum.Með frumvarpi þessu er leitast við að einfalda löggjöf um starfsemi veitinga- og gistihúsa þannig að ákvæði laganna verði ekki til þess að hindra eða tefja uppbyggingu á þessu sviði ferðaþjónustunnar í landinu, jafnframt því að gætt er neytendaverndar með ákvæðum um þau almennu skilyrði sem uppfylla þarf um hollustuhætti, eldvarnir og staðfestingu sveitarstjórnar. Ferðaþjónusta er í örum vexti hér á landi, jafnt við innlenda sem erlenda ferðamenn, og því mikilvægt að skapa atvinnugreinum innan ferðaþjónustunnar góð skilyrði til að bregðast við auknum umsvifum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Þessi grein fjallar um gildissvið laganna. Hér er sérstaklega tekið fram að gisti- og veitingasala ferðabænda falli undir lög þessi og er það breyting frá gildandi lögum.
Um 2. gr.
Hér eru talin upp skilyrði sem ábyrgðaraðili fyrir starfsemi samkvæmt lögum þessum þarf að uppfylla til að geta hafið starfsemi. Með ábyrgðaraðila er átt við einstakling eða lögpersónu sem ber lagalega ábyrgð á starfsemi samkvæmt lögunum. Í 2. gr. gildandi laga nr. 67/1985, um veitinga- og gististaði, eru nokkuð strangari skilyrði sem ábyrgðaraðili verður að uppfylla, m.a. að hafa búsetu á Íslandi. Hér er hins vegar látið nægja að setja það skilyrði að ábyrgðaraðili hafi varnarþing á Íslandi. Gildandi lög gera einnig ráð fyrir sérstöku leyfi til ákveðins tíma fyrir starfsemi gisti- og veitingastaða, en hér er lagt til að starfsemin sé skráð, sbr. 3. gr., áður en starfsemi hefst.
Um 3. gr.
Hér er gert ráð fyrir að starfsemi samkvæmt lögum þessum sé skráð hjá lögreglustjóra að fengnum nauðsynlegum staðfestingum frá sveitarstjórn, eldvarnaeftirliti og heilbrigðisnefnd. Taki nýr rekstraraðili við starfsemi samkvæmt lögunum ber að tilkynna slíkt þegar til lögreglustjóra, en honum ber að halda skrá um ábyrgðaraðila og skrásetta starfsemi. Lögreglustjóri getur stöðvað starfsemi samkvæmt lögum þessum sé skilyrðum samkvæmt þessari grein og 2. gr. ekki fullnægt.
Um 4. gr.
Hér er gert ráð fyrir því að allir rekstraraðilar, er undir þessi lög falla, skuli veita Hagstofu Íslands tölulegar upplýsingar samkvæmt nánari fyrirmælum í reglugerð. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar almennt til könnunar og skipulagningar í atvinnugreininni, enda gera lög um Hagstofu Íslands ekki ráð fyrir öðru.
Um 5. gr.
Hér eru settar ákveðnar skorður á heimildir ráðherra til að setja reglugerðir um starfsemi samkvæmt lögum þessum. Fellt er út úr lögunum ákvæði gildandi laga um búnað og flokkun gisti- og veitingastaða, en slík ákvæði eiga betur heima í reglugerð. Einnig er skilyrt að samráð skuli hafa við atvinnugreinina. Þá er hér gert ráð fyrir því að Ferðamálaráð Íslands geti fyrir hönd atvinnugreinarinnar óskað eftir að sett skuli reglugerð um ákveðna þætti starfseminnar.
Um 6. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 7. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.