Ferill 477. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 477 . mál.


735. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um framkvæmd búvörusamnings.

Frá Ragnari Arnalds.



    Hversu mikinn framleiðslurétt hefur ríkisvaldið keypt af bændum síðan 1. september sl.?
    Hversu mikil eru viðskipti milli bænda með fullvirðisrétt orðin síðan þau voru leyfð og hvað veldur því að ríkið hefur ekki nema að litlu leyti nýtt sér rétt sinn til að ganga inn í viðskiptin og kaupa fimmtung réttarins til að draga úr þörf á flatri skerðingu næsta haust?
    Hversu mikil verður seinni niðurfærsla fullvirðisréttarins á komandi hausti eins og nú horfir og hefur ríkisstjórnin í huga einhverjar ráðstafanir til að draga úr eða auðvelda niðurfærslu?