Ferill 480. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 480 . mál.


738. Tillaga til þingsályktunar



um rannsókn á jarðvegi og grunnvatni við „varnarsvæðin“ á Suðurnesjum.

Flm.: Sigríður Jóhannesdóttir.


    
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gangast fyrir rannsókn á jarðvegi og grunnvatni við „varnarsvæðið“ á Keflavíkurflugvelli í þeim tilgangi að leiða í ljós hvort þar hafi á liðnum árum farið niður eiturefni á þeim tíma sem þar hefur verið herstöð.
    

Greinargerð.


    Á undanförnum árum hefur verið dregið fram í dagsljósið að fjölmörg mengunarslys hafa orðið í nágrenni herstöðva frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Það er nú ljóst að með ýmsu móti hafa farið niður í jarðveg efni eins og þotueldsneyti, afísingarefni, ýmiss konar hreinsiefni, t.d. hið baneitraða tríklórethylene, TCE, úrgangsolíur, slökkviefni, rafgeymaleifar (blý og sýra), spennaolía sem stundum innihélt PCB, málningarleifar, málmhúðunarleifar og ýmislegt annað miður geðslegt.
    Vitað er að hér áður fyrr höfðu menn einkum áhuga á því að nota efni sem voru umfram allt skjótvirk en voru sér ekki meðvitaðir um skaðsemi efnanna. Nú er því brýn nauðsyn á að safnað verði allri fáanlegri vitneskju um þá staði sem kunna að vera hættusvæði meðan enn eru á lífi menn sem hafa unnið við herstöðina frá upphafi og búa yfir vitneskju um hvar slík eiturefni hafa verið urðuð eða fóru niður fyrir slysni eða gáleysi. Í framhaldi af því verði svo kortlögð sú vitneskja sem fæst og nákvæm efnagreining gerð á þeim jarðvegi sem óttast er að sé mengaður.
    Meðan niðurstaða slíkrar könnunar liggur ekki fyrir getum við aðeins borið aðstæður hér saman við þær sem nú eru þekktar frá öðrum herstöðvum þar sem slíkar rannsóknir hafa verið gerðar, t.d. í Vestur-Þýskalandi, á Guam og Filippseyjum, en þar hafa víða komið fram alvarleg mengunartilfelli og þurft hefur að leggja í mikinn kostnað við hreinsun jarðvegs.
    Þess má geta að í sýnum, sem tekin hafa verið á Heiðarfjalli þar sem var þó aðeins rekin ratsjárstöð í 15 ár, hefur greinst töluvert af baneitruðum þungmálmum, t.d. kadmíum, krómi, blýi og nikkel.
    Árið 1989 lét bandaríski herinn gera mælingar á grunnvatnssýnum sem tekin voru á svæðum sem á meðfylgjandi fylgiskjölum eru merkt með svörtum punkti. Rannsóknin tók aðeins til tveggja hættulegra efna, TCE eða tríklóretylene og PCE eða perklóretylene. Rannsóknin leiddi í ljós að efnið tríklóretylene fannst þá á útbreiddu svæði við flugvöllinn og víða yfir hættumörkum, m.a. við þáverandi vatnsból Njarðvíkinga og hersins eins og marka má af meðfylgjandi korti. Þetta efni TCE er talið geta valdið ýmsum alvarlegum sjúkdómum, svo sem hjartagöllum, og vera krabbameinsvaldandi. Hitt efnið, sem rannsakað var, perklóretylene (PCE) sem er baneitrað, fannst einnig í nokkrum mæli í grunnvatnssýnum. Efni sem þessi eyðast ekki. Það verður að hreinsa jarðveginn, annars breiðast þau sífellt meira út.
    Nú er líklegt að umsvif „varnarliðsins“ á Suðurnesjum fari minnkandi á næstu árum og þá verður að finna annars konar atvinnutækifæri fyrir þá Íslendinga sem nú hafa þar atvinnu sína. Talað hefur verið um að möguleikarnir liggi fyrst og fremst í matvælaframleiðslu, ýmiss konar heilbrigðisþjónustu sem yrði starfrækt í formi heilsuhælis í tengslum við Bláa lónið og aukinni ferðamannaþjónustu. Allir þessir möguleikar byggjast á hreinu umhverfi og því er afar brýnt að málið verði gjörkannað áður en lagt verður út í miklar fjárfestingar á svæðinu.
    Það má ljóst vera að leiði niðurstaða jarðvegs- og grunnvatnsrannsókna í ljós að þar fyrirfinnist eiturefni í einhverjum mæli verður að gera þá kröfu að herinn hreinsi upp eftir sig áður en lengra er haldið. Og þessi krafa á í raun ekki aðeins við um Suðurnes, heldur og aðra þá staði á Íslandi þar sem herinn hefur haft umsvif. Það þarf ekki mikinn spámann til að sjá fyrir hver yrðu örlög þeirra atvinnugreina sem helst hefur verið rætt um að byggja upp á Suðurnesjum og kynna sem heilsubætandi vegna hreinleika hinnar óspilltu íslensku náttúru ef í ljós kæmi að við flytum hér á eiturpolli.
    Því telur flutningsmaður að af ofangreindum ástæðum og með vísan til almennra hollustu- og heilbrigðissjónarmiða sé brýnt að þegar í stað verði tekið á þessum málum.
    Meðfylgjandi eru kort gerð á vegum Bandaríkjahers 1989 yfir útbreiðslu eiturefnanna TCE og PCE í grunnvatni á Keflavíkurflugvallarsvæðinu.



repró í gut — tvö kort.