Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 484 . mál.


742. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um endurskoðun laga um grunnskóla og framhaldsskóla.

Frá Bryndísi Friðgeirsdóttur og Sigríði Jóhannesdóttur.



    Hvers vegna er enginn fulltrúi frá samtökum sveitarfélaga í nefnd um endurskoðun laga um grunnskóla og framhaldsskóla sem þó á meðal annars að kanna kosti þess að færa rekstur grunnskóla alfarið undir sveitarfélögin?
    Hvers vegna er enginn fulltrúi frá kennarasamtökunum í nefndinni?
    Hvers vegna er aðeins einn fulltrúi utan höfuðborgarsvæðis í nefndinni?