Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 488 . mál.


752. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um öryggismál sjómanna.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hvers vegna hafa ekki enn verið settar starfsreglur fyrir rannsóknarnefnd sjóslysa svo sem boðað er í lögum nr. 21/1986?
    Hefur að dómi ráðherra tekist að færa rannsóknir á sjóslysum „í nútímalegt horf“ eins og stefnt var að með breytingu á siglingalögum 1986, t.d. með því að haga þeim eins og gert er þegar flugslys verða?
    Telur ráðherra koma til greina — einkum í ljósi tíðra sjóslysa að undanförnu — að herða varúðarreglur við siglingar skipa þannig að aldrei verði færri en tveir menn á vakt í brúnni hverju sinni?