Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 125 . mál.
767. Breytingartillaga
við frv. til l. um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum.
Frá Magnúsi Jónssyni.
Á eftir 6. gr. komi ný grein svohljóðandi:
Ákvæði þessara laga eiga ekki við um flatningu og söltun um borð í smærri bátum er stunda línu- og handfæraveiðar. Sjávarútvegsráðherra er þó heimilt að setja reglur um meðferð afskurðar og fiskúrgangs um borð í þessum bátum.