Ferill 504. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 504 . mál.


805. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um greiðslur til stuðningsfjölskyldna.

Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.



        Hve margar fjölskyldur eru stuðningsfjölskyldur fatlaðra einstaklinga hér á landi?
        Hve mikið fá stuðningsfjölskyldur greitt fyrir stuðninginn að meðaltali? Hver er hámarksgreiðsla til stuðningsfjölskyldu, hve margar stundir á viku er stuðningur þá veittur og hve margar fjölskyldur fá hámarksgreiðslu? Hver er lægsta greiðsla til stuðningsfjölskyldna, hve margar stundir á viku er stuðningur þá veittur og hve margar fjölskyldur fá lægstu greiðslu?