Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. –
509
. mál.
812. Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um fyrirhugaða lokun deilda vegna sparnaðar á sjúkrahúsunum í Reykjavík.
Frá Finni Ingólfssyni.
Hvað verða mörg sjúkrarúm tekin úr notkun vegna lokunar deilda í sparnaðarskyni á sjúkrahúsunum í Reykjavík í maí til ágúst 1992?
Hvernig skiptist fjöldi þessara rúma eftir sjúkrahúsum, deildum og sérgreinum?
Hver er áætlaður sparnaður við að taka þessi rúm úr notkun?
Hve miklum fjármunum er ráðstafað á árinu 1992 til breytinga á Landakoti til að hægt sé að koma þar af stað öldrunarlækningaþjónustu?