Ferill 522. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. –
522
. mál.
855. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um eftirlit með opinberum fjársöfnunum.
Frá Finni Ingólfssyni.
Hvaða tryggingu hefur gefandi fyrir því að það fé, sem hann gefur í opinberri fjársöfnun, renni til þess málefnis er því er ætlað?
Getur sá sem tilkynnir til lögreglustjóra eða fær leyfi dómsmálaráðuneytisins fyrir opinberri fjársöfnun látið annan aðila sjá um framkvæmd fjársöfnunarinnar fyrir sig?
Hve margar opinberar fjársafnanir hafa verið tilkynntar til lögreglustjóra eða leyfi fengist fyrir hjá dómsmálaráðuneytinu á undanförnum þremur árum?
Hefur ákvæðum 7. gr. laga nr. 5/1977 verið fullnægt í öllum tilfellum?