Ferill 523. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 523 . mál.
856. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness.
Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Hvernig verður háttað þátttöku menntamálaráðuneytisins í þeim árlegu bókmenntaverðlaunum sem bera munu nafn Halldórs Laxness og stofnað verður til af ráðuneytinu og útgáfufyrirtækinu Vöku-Helgafelli?