Ferill 216. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 216 . mál.
866. Nefndarálit
um till. til þál. um breyt. á þál. um vegáætlun fyrir árin 1991–1994.
Frá meiri hluta samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um tillöguna en þetta er í fyrsta sinn sem samgöngunefnd hefur vegáætlun til meðferðar. Fyrir breytingu þingskapa var málið lagt fram í sameinuðu Alþingi og vísað til fjárveitinganefndar. Þær venjur, sem skapast höfðu í fjárlaganefnd við umfjöllun vegáætlunar, voru hafðar að leiðarljósi einnig að þessu sinni. Þannig fékk nefndin vegamálastjóra og starfsmenn hans til að aðstoða nefndina við yfirferð málsins og samráð var haft við þingmannahópa kjördæmanna um skiptingu framkvæmdafjár milli einstakra viðfangsefna. Á fund nefndarinnar komu Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri, Jón Birgir Jónsson aðstoðarvegamálastjóri, Jón Rögnvaldsson, yfirverkfræðingur Vegagerðarinnar, Hannes Már Sigurðsson, viðskiptafræðingur Vegagerðarinnar, Maríanna Jónasdóttir, deildarstjóri á efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Örn Kjærnested, formaður Verktakasambands Íslands, Gunnar Birgisson, fulltrúi Verktakasambands Íslands, Pálmi Kristinsson, framkvæmdastjóri Verktakasambands Íslands, Sigurður Þórðarson vararíkisendurskoðandi og Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun.
Regluleg endurskoðun vegáætlunar fór fram á 113. löggjafarþingi, 1990–1991. Sú endurskoðun, sem nú er gerð, nær því aðeins til tekjuspár og framkvæmdaáforma fyrir yfirstandandi ár. Regluleg endurskoðun vegáætlunar, sem fram fer á tveggja ára fresti, fer hins vegar fram á næsta þingi, 1992–1993. Núgildandi vegáætlun fyrir árin 1991–1994 var samþykkt á Alþingi í mars 1991. Í henni var gert ráð fyrir að á þessu ári yrði 6.318 m.kr. aflað með mörkuðum tekjustofnum og miðað var við að verðlagshækkun milli áranna 1991 og 1992 yrði 8%. Í fjárlagagerð fyrir 1992 var gert ráð fyrir 3,5–4% hækkun milli ára og samkvæmt þeim verðlagsforsendum hefði framkvæmdafé lækkað um tæpar 300 m.kr. Í fjárlögum fyrir árið 1992 er hins vegar gert ráð fyrir að markaðir tekjustofnar gefi af sér 5.830 m.kr. og af þeim renni 265 m.kr. í ríkissjóð. Af þessari ástæðu þurfti að endurskoða vegáætlunina.
Einnig þurfti nú að endurskoða vegáætlunina vegna samkomulags fjármálaráðherra við borgarstjóra Reykjavíkur frá 3. apríl 1991 um greiðslu á skuld ríkisins sem tilkomin er vegna framkvæmda við þjóðvegi í Reykjavík. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir greiðslum að upphæð 370 m.kr. á tímabili núgildandi vegáætlunar en í henni er gert ráð fyrir greiðslum að upphæð 337 m.kr. eða 33 m.kr. lægri upphæð á tímabilinu 1991–1994. Einnig er í samkomulaginu gert ráð fyrir annarri greiðslutilhögun á tímabilinu en er í samþykktri vegáætlun 1991–1994. Eins og fram kom við fyrri umræðu um þessa tillögu er samkomulag fjármálaráðherra og borgarstjóra umdeilt. Var þeirri ósk þá beint til samgöngunefndar að hún kannaði lögmæti þess. Hefur samgöngunefnd kannað málið ítarlega en óskaði jafnframt eftir áliti fjárlaganefndar á samkomulaginu. Svar fjárlaganefndar er birt sem fylgiskjal með þessu áliti, en því fylgdi álit Ríkisendurskoðunar á tilteknum atriðum. Ekki verður frekar fjölyrt um samkomulag þetta en telja má þó að það sé bindandi fyrir ríkissjóð og því ekki efni til annars en að standa við það.
Meiri hluti nefndarinnar leggur ekki til breytingar á þeirri áætlun um fjáröflun sem gert er ráð fyrir í tillögunni. Við umfjöllun um áætlunina var haft samráð við fjárlaganefnd og er hún innan ramma gildandi fjárlaga.
Varðandi skiptingu útgjalda er lögð til sú breyting að fluttar verði 120 m.kr. af liðnum 2.2.2. Vetrarþjónusta á liðinn 2.3. Til nýrra þjóðvega. Af þessum fjármunum fara 60 m.kr. til stórverkefna, 40 m.kr. í Vestfjarðagöng en 20 m.kr. í Strákagöng. Til almennra verkefna og bundins slitlags á stofnbrautir fara 45 m.kr. og 10 m.kr. til stofnbrauta á höfuðborgarsvæðinu. Til þjóðbrauta fara 5 m.kr.
Við endanlega ákvörðun um framlög til einstakra verkefna hafa þingmenn kjördæma unnið í samráði við Vegagerð ríkisins og hefur nefndin fallist á tillögur þeirra enda hafa þær ekki breytt heildarframlögum til vegamála á árinu 1992.
Meiri hluti nefndarinnar leggur til að tillagan verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 5. maí 1992.
Árni M. Mathiesen,
Sigbjörn Gunnarsson.
Pálmi Jónsson.
form., frsm.
Árni Johnsen.
Sturla Böðvarsson.
Fylgiskjal I.
Bréf formanns fjárlaganefndar til formanns samgöngunefndar.
(7. maí 1992.)
Með vísan til bréfs yðar, dags. 13. mars 1992, vill fjárlaganefnd taka fram að athugun hefur leitt í ljós að samkomulagi fjármálaráðherra við Reykjavíkurborg, dags. 3. apríl 1991, var ekki vísað til fjárveitinganefndar á þeim tíma og ekki heldur til núverandi fjárlaganefndar. Nefndin hefur því ekki staðfest samkomulagið.
Hins vegar hefur nefndin leitað álits Ríkisendurskoðunar á tilteknum atriðum samkomulagsins og fylgir svar Ríkisendurskoðunar hér með.
Karl Steinar Guðnason,
formaður fjárlaganefndar.
Fylgiskjal II.
Bréf Ríkisendurskoðunar
til formanns fjárlaganefndar.
(7. maí 1992.)
REPRÓ
Sigurður Þórðarson,
Lárus Ögmundsson.