Ferill 202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 202 . mál.
872. Nefndarálit
um frv. til l. um stofnun hlutafélags um Síldarverksmiðjur ríkisins.
Frá minni hluta sjávarútvegsnefndar.
Minni hluti nefndarinnar er samþykkur því að breyta Síldarverksmiðjum ríkisins í hlutafélag. Minni hlutinn hefur vænst þess að hægt væri að ná samkomulagi um þau ágreiningsmál sem uppi eru, en því miður hefur það ekki tekist. Þau efnisatriði, sem minni hluti nefndarinnar gerir athugasemdir við, eru eftirfarandi:
Minni hluti nefndarinnar getur ekki fallist á að veita heimild til að selja allt fyrirtækið. Eðlilegt er að í upphafi sé gefin heimild til að selja allt að 40% af hlutafénu, en ríkisstjórnin þurfi að fá heimild Alþingis til að selja meira og jafnframt til sölu á einstökum verksmiðjum. Verksmiðjurnar skipta miklu máli fyrir afkomu fólks á þeim stöðum þar sem þær eru. Minni hlutinn telur eðlilegt að áður en ákvarðanir eru teknar um að selja meiri hluta félagsins eða einstakar verksmiðjur sé skylt að leita samþykkis Alþingis.
Minni hlutinn telur að eðlilegt sé að Alþingi kjósi stjórnarmenn fyrirtækisins sem eignarhlutur ríkisins gefur rétt til, svo lengi sem ríkið á meiri hluta í fyrirtækinu.
Ekkert liggur fyrir um hvert er mat á eignum fyrirtækisins. Eðlilegast hefði verið að áður en málið er afgreitt sé kynntur upphafsefnahagsreikningur hins nýja fyrirtækis. Jafnframt er eðlilegt að félagið yfirtaki rekstrartöp Síldarverksmiðja ríkisins frá fyrri árum. Þótt heimild sé veitt fyrir fjármálaráðherra að yfirtaka hluta af skuldum Síldarverksmiðja ríkisins liggur ekkert fyrir um hvort sú heimild verður notuð. Vonandi getur fyrirtækið greitt skuldir sínar sjálft án þess að ríkið komi þar til. Síldarverksmiðjur ríkisins eiga hafnarmannvirki sem aðrar verksmiðjur hafa ekki þurft að byggja. Ríkið hefur þurft að kosta til þeirra mannvirkja í gegnum tíðina og væri eðlilegt að þessi hafnarmannvirki væru keypt þannig að staða Síldarverksmiðja ríkisins væri svipuð og gerist um aðrar verksmiðjur í landinu.
Ávallt koma upp margvísleg samstarfsmál þar sem staðbundin þekking verður að vera fyrir hendi og því er nauðsynlegt að í samþykktum félagsins séu ákvæði um sérstaka samstarfsnefnd. Það þarf að tryggja að heimamenn komi að stjórn fyrirtækisins og hafi þar eðlileg ítök. Það er ekki aðeins nauðsynlegt vegna byggðarlaganna heldur jafnframt fyrir fyrirtækið sem heild.
Verulegur ágreiningur hefur komið upp um réttindi starfsmanna. Í því sambandi vísast til greinargerðar sem fylgir með nefndarálitinu. Minni hluti nefndarinnar óskaði eftir því að fá að ræða við fulltrúa BSRB áður en frumvarpið væri afgreitt frá nefnd. Því var hafnað og vilyrði gefin um slíkar viðræður síðar. Á þessu stigi leggur minni hluti nefndarinnar til að 7. gr. frumvarpsins falli niður og leitað verði samninga við starfsmenn um þetta atriði. Afstaða kann að breytast eftir viðræður við fulltrúa BSRB.
Minni hluti nefndarinnar flytur breytingartillögur á þskj. 873 og að þeim samþykktum getur hann fallist á að styðja frumvarpið. Fulltrúi samtaka um Kvennalista, Anna Ólafsdóttir Björnsson, er samþykk nefndaráliti þessu.
Alþingi, 8. maí 1992.
Halldór Ásgrímsson,
Steingrímur J. Sigfússon.
Stefán Guðmundsson.
frsm.
Jóhann Ársælsson.
Fylgiskjal I.
Umsögn Síldarverksmiðja ríkisins.
(12. mars 1992.)
(Repró í Gutenberg, 2 síður)
Bréf Síldarverksmiðja ríkisins til sjávarútvegsnefndar.
(27. mars 1992.)
Í framhaldi af komu okkar, fulltrúa SR, á fund sjávarútvegsnefndar leyfi ég mér í samráði við Þorstein Gíslason stjórnarformann SR að senda viðlagða punkta sem svör við nokkrum spurningum nefndarmanna.
Það skal tekið fram að í þessum punktum koma fyrst og fremst fram skoðanir undirritaðs.
Þórður Jónsson,
rekstrarstjóri SR.
Staða fiskimjölsiðnaðar á Íslandi.
Greinin sem heild stendur frammi fyrir miklum vanda vegna tekjusamdráttar sem stafar af lágu heimsmarkaðsverði á hefðbundnum afurðum og miklum sveiflum í hráefnisframboði.
Á yfirliti um tekjur og gjöld verksmiðja á Íslandi kemur fram að heildartekjur minnkuðu úr 8 milljörðum 1988 í um 5 milljarða 1990. Tölur fyrir 1991 eru ekki fyrirliggjandi en það ár er eitt það versta í sögu fiskimjölsiðnaðarins á Íslandi.
Heildarskilaverðstekjur úr loðnutonni voru í byrjun yfirstandandi vertíðar um 8.000 kr. en eru nú í lok vertíðarinnar komnar niður í um 6.000 kr.
Ekki verður annað séð en að stefnt geti í að hefðbundin vinnsla á bræðslufiski leggist af á Íslandi ef ekki kemur til verulegrar hækkunar á tekjum og/eða lækkunar á útgjöldum.
(Repró, 1 síða, súlurit, Fél. ísl. fiskmjölsframleiðenda.)
Verð á bræðslufiski og afurðum.
Til margra ára ákvað Verðlagsráð lágmarksverð á bræðslufiski. SR hélt sig fast við þetta verð. Skip fengu löndun eftir röð í höfn og verðmunur var yfirleitt lítill en þó yfirborguðu einkaverksmiðjur þegar lítið veiddist.
Loðnuverð var gefið frjálst 1987. Til að byrja með ákvað stjórn SR verðið sem boðið var. Þetta verð var mjög hátt miðað við greiðslugetu verksmiðjanna.
Aðrar verksmiðjur fóru samt yfir þetta fasta verð ef þeim bauð svo við að horfa.
Einnig hófu verksmiðjur að kaupa skip og fluttu þar með kvótann í land. SR hefur fyrst og fremst keppt í verði og stefnan hefur verið að gera verksmiðjur fyrirtækisins hæfar til þessarar samkeppni.
Reynslan af rekstri verksmiðjunnar á Seyðisfirði sýnir að of varlega var farið í samkeppninni síðastliðið haust. Grundvöllur var fyrir kaupum SR á síldarkvótum sem síðan hefði verið unnt að fá báta til að veiða. Þetta sést best á þeirri staðreynd að mjöl frá Seyðisfirði seldist á að meðaltali 25–30% hærra verði en annað mjöl.
Til þess að gefa mönnum einfalda hugmynd um hversu lágt verð er nú á loðnuafurðum má nefna að í dag kostar 8.000 kr. að flytja 1 tonn af vöru frá Reykjavík til Húsavíkur með bíl. Sé þetta dæmi heimfært á loðnuvinnslu þá má kostnaður við veiði á einu tonni, sigling til hafnar, löndun, vinnsla, útskipun afurða úr þessu eina tonni ásamt tilheyrandi afskriftum og fjármagnskostnaði skipa og verksmiðja ekki fara yfir 7.000 kr. á loðnutonn eigi þessi iðnaður að bera sig.
Rækjukvóti, sem úthlutað er til verksmiðja sem eiga skip, hefur verið SR mjög dýr því honum hefur verið skipt út fyrir loðnu eða beinlínis notaður sem hluti af greiðslu fyrir loðnu. Þetta kom sérstaklega illa út fyrir SR veturinn 1991 þegar loðnukvótaeigendur fengu aukarækjukvóta vegna loðnubrestsins. Þetta jafngildir því að sumir af keppinautum SR hafi fengið ríkisstyrk til kaupa á loðnu.
Stýring loðnuveiðanna.
Æskilegt væri að í byrjun vertíðar væri gefinn út allur sá kvóti sem talið er mögulegt að leyfður verði með fyrirvara um hugsanlega skerðingu eftir áramót. Til enn frekari hvatningar væri hægt að leyfa þeim skipum sem klára kvóta sína tímanlega að veiða úr því magni sem Norðmenn og Grænlendingar ná ekki.
Staðreynd er að mest verðmæti fást úr loðnu sem veidd er á tímabilinu ágúst–desember. Loðnan fer að horast í desember og lýsisnýtingin fellur úr 14–15% niður í 1–3% í lok mars. Skilaverð hvers loðnutonns lækkar því um 1.500–2.000 kr.
Með öðrum orðum þýðir þetta að hver 50.000 tonn sem veidd eru fyrir áramót skila 80–100 millj. kr. meira en sama magn veitt í mars. Vinnslukostnaður er þó hinn sami í báðum tilfellum.
Á undanförnum árum hefur verið mikil öfugþróun í loðnuverði innan hverrar vertíðar. Haustverð hafa verið lág, en þegar liðið hefur verið á vertíðirnar hefur það hækkað þó svo að skilaverðið úr loðnunni hafi lækkað. Þetta hefur latt menn til haustveiða.
Markaðsmál.
Venjulegt íslenskt fiskimjöl, „FAQ-mjöl“, er í beinni óheftri samkeppni við fiskimjöl frá Suður-Ameríku, t.d. frá Perú þar sem laun eru 10% af því sem hér er greitt.
Verðið, sem við fáum fyrir FAQ-mjöl, ræðst af framboði og verði frá Perú. Kostnaður hér innan lands breytir engu. Íslendingar verða að komast inn á markaði sem Perúmenn eru ekki á, samanber mjölið frá SR á Seyðisfirði.
Algjört útflutningsfrelsi hefur ríkt gagnvart mjöli og lýsi.
Nokkur fyrirtæki hafa í mörg ár selt mjöl og lýsi í umboðssölu. Flest eru þessi fyrirtæki í sambandi við erlenda umboðsaðila sem sjá um hinar endanlegu sölur og sambandið við kaupendurna. Fyrir þessa þjónustu eru greidd 2% af cif-verði afurðanna.
Helsti ókostur þessa kerfis var og er að nánast ekkert samband er á milli framleiðanda og kaupanda. Kvartanir og ábendingar komast seint og illa til skila. Sárafá föst viðskiptasambönd myndast. Þetta fyrirkomulag gekk þó sæmilega á meðan eingöngu var framleitt FAQ-mjöl og kaupendur voru tilbúnir að kaupa með því hugarfari að þeir væru að spila í rúllettu því tilviljun réð hvers konar vöru þeir fengu og verðhugmyndir þeirra voru eftir því.
Það skal þó tekið fram að í sumum tilfellum hafa íslenskir umboðsmenn náð mjög hagstæðum sölum á FAQ-mjöli til Austur-Evrópu og fjarlægari markaða.
Ef ná á árangri með sérframleitt mjöl og lýsi er nauðsynlegt að hafa stöðugt og náið samband við stærstu notendurna og velja til samstarfs þá sem mesta þekkingu hafa.
Nægjanlegt er að hafa einn umboðsaðila ef á annað borð er talið æskilegt að slíkur sé til staðar til þess að sjá um vissa hluta viðskiptanna. Umboðsaðilinn verður að sætta sig við að framleiðandi og kaupandi hafi samband sín á milli varðandi vöruþróun og framleiðsluhætti.
Talið er að þær fáu fiskimjölsverksmiðjur sem eftir eru í Danmörku hafi lifað af vegna eigin markaðssetningar og vöruþróunar sem fært hafi þeim forskot á nú fallna keppinauta.
Það er ekki ásættanlegt að íslenskt loðnumjöl sé yfirleitt alltaf selt á lægra verði en mjöl framleitt úr lakara hráefni í Noregi eða Danmörku.
(Repró í Gut., 1 síða, Fél ísl. fiskmjölsfr., tafla.)
Verkfræðistofa Daníels Gestssonar:
Bryggjur í eigu SR.
(Úr Mati á hafnarmannvirkjum Síldarverksmiðja ríkisins.)
(Repró, 1 síða, teikning.)
Skipting aflakvóta á vertíð 1991–1992.
(Repró, 2 síður, nýr haus.)
Samantekinn afli og verðmæti.
(24. mars 1992.)
(Repró, 2 síður, nýr haus.)
Móttekinn afli hjá verksmiðjum.
(24. mars 1992.)
(Repró, 1 síða, nýr haus.)
Fylgiskjal II.
Umsögn hreppsnefndar Raufarhafnarhrepps.
(7. mars 1992.)
(Repró, 1 síða, nýr haus.)
Fylgiskjal III.
Umsögn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands.
(4. mars 1992.)
Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, FFSÍ, hefur borist til umsagnar framangreint frumvarp til laga frá sjávarútvegsnefnd Alþingis.
FFSÍ gerir engar athugasemdir við það frumvarp sem hér er til umsagnar. Aftur á móti vilja samtökin benda á þá staðreynd að Síldarverksmiðjur ríkisins hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að koma á og viðhalda frjálsri verðmyndun á loðnu undanfarin ár. Segja má að þessu sé fyrst og fremst að þakka að verksmiðjunum hefur verið óheimilt að reka útgerð.
Virðingarfyllst,
f.h. FFSÍ,
Benedikt Valsson.
Fylgiskjal IV.
Umsögn Vélstjórafélags Íslands.
(10. mars 1992.)
Félagið gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.
Virðingarfyllst,
fh. Vélstjórafélags Íslands,
Helgi Laxdal, formaður.
Fylgiskjal V.
Umsögn Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda.
(5. mars 1992.)
Stjórn Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda fjallaði á fundi sínum þann 4. mars um frumvarp til laga um Síldarverksmiðjur ríkisins. Eftirfarandi var samþykkt:
Stjórn Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda fagnar framkomnu frumvarpi um Síldarverksmiðjur ríkisins og telur það mjög til bóta. Hvetur stjórnin jafnframt til að skrefið til fullkominnar einkavæðingar fyrirtækisins verði stigið hið fyrsta.
Kveðja,
Félag íslenskra fiskmjölsframleiðenda,
Jón Ólafsson.
Fylgiskjal VI.
Umsögn hreppsnefndar Reyðarfjarðarhrepps.
(4. mars 1992.)
Á fundi hreppsnefndar Reyðjarfjarðarhrepps þann 2. mars sl. var eftirfarandi samþykkt gerð:
„Hreppsnefnd Reyðarfjarðarhrepps er sammála því að Síldarverksmiðjum ríkisins sé breytt í hlutafélag, jafnframt telur sveitarstjórn eðlilegt að kveðið sé á um í samþykkt væntanlegs hlutafélags að Reyðarfjarðarhreppur fái að tilnefna einn stjórnarmann.“
Þetta tilkynnist yður hér með.
Virðingarfyllst,
Ísak J. Ólafsson,
sveitarstjóri.
Fylgiskjal VII.
Umsögn Sjómannasambands Íslands.
(17. mars 1992.)
Stjórn Sjómannasambands Íslands hefur fjallað um frumvarp til laga um stofnun hlutafélags um Síldarverksmiðjur ríkisins. Stjórnin styður frumvarpið og telur breytt rekstrarform á fyrirtækinu mjög til bóta.
Vegna fyrirhugaðrar sölu ríkisins á hlut sínum í Síldarverksmiðjum ríkisins, verði frumvarpið að lögum, er það álit stjórnar Sjómannasambands Íslands að ekki eigi að hluta fyrirtækið í sundur því styrkur þess felist í stærðinni og staðsetningu verksmiðjanna.
F.h. Sjómannasambands Íslands,
Hólmgeir Jónsson.
Fylgiskjal VIII.
Umsögn Landssambands íslenskra útvegsmanna.
(10. mars 1992.)
Við höfum móttekið bréf ykkar dags. 20. febrúar sl. þar sem okkur er sent til umsagnar frumvarp til laga um Síldarverksmiðjur ríkisins.
Stjórn LÍÚ samþykkti á fundi sínum í dag að mæla með samþykkt frumvarpsins um að breyta Síldarverksmiðjum ríkisins í hlutafélag.
Virðingarfyllst,
f.h. Landssambands ísl. útvegsmanna
,Kristján Ragnarsson.
Fylgiskjal IX.
Umsögn starfsmannafélags ríkisstofnana.
(17. febrúar 1992.)
(Repró, 1 síða, nýr haus.)
Umsögn Gests Jónssonar, hrl.
(15. febrúar 1992.)
(Repró, 3 síður, nýr haus.)
Fylgiskjal X.
Álit Almennu málflutningsstofunnar sf.
á 7. gr. frumvarps til laga um Síldarverksmiðjur ríkisins
með tilliti til 14. gr laga nr. 38/1954.
(7. apríl 1992.)
Með bréfi, dags. 7. apríl 1992, hafið þér óskað álits undirritaðs á því hvort ákvæði 7. gr. frumvarps til laga um Síldarverksmiðjur ríkisins komi í veg fyrir rétt starfsmanna Síldarverksmiðja ríkisins til biðlauna skv. 14. gr. l. nr. 38/1954 um ríkisstarfsmenn. Jafnframt er óskað álits á því hvort ákvæði nefndrar 7. gr. frumvarpsins geti falið í sér ólögmæta skerðingu á stjórnarskrárvörðum eignarréttindum þessara starfsmanna.
7. gr. frumvarpsins er svofelld:
„Fastráðnir starfsmenn Síldarverksmiðja ríkisins skulu hafa rétt til starfa hjá hinu nýja hlutafélagi við stofnun þess og skal þeim boðin sambærileg staða hjá félaginu og þeir gegndu áður hjá verksmiðjunum. Ákvæði 14. gr. l. nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, á því ekki við um þá starfsmenn.“
Álit undirritaðs er eftirfarandi:
Um starfskjör ríkisstarfsmanna gilda l. nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Enn fremur gilda lög nr. 97/1974, um eftirlit með ráðningu starfsmanna og húsnæðismálum ríkisstofnana, og lög nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Samkvæmt 14. gr. l. nr. 38/1954 skal ríkisstarfsmaður, er staða er lögð niður, „jafnan fá föst laun er starfanum fylgdu, greidd í 6 mánuði . . . , ef hann hefur verið í þjónustu ríkisins skemur en 15 ár, en í 12 mánuði, eigi hann að baki lengri þjónustualdur, enda hafi hann þá ekki hafnað annarri sambærilegri stöðu á vegum ríkisins“.
Þau atriði, sem koma einkum til skoðunar hér, eru í fyrsta lagi skilgreining biðlauna, þ.e. tilgangur með greiðslu launa er staða er lögð niður og í öðru lagi hugtakið „sambærileg staða“. Í þriðja lagi réttur til biðlauna. Loks kemur til skoðunar gildi laganna gagnvart ákvæði 67. gr. stjórnarskrár og texti 7. gr. ofangreinds frumvarps borinn saman við ákvæði 14. gr. laga nr. 38/1954.
1. Hvað eru biðlaun?
Tilgangi löggjafans með greiðslu biðlauna, þegar staða er lögð niður, er ýmist jafnað til launa í uppsagnarfresti ellegar til skaðabóta fyrir þá röskun á atvinnuöryggi sem felst í missi starfs hjá ríkinu.
Greinargerð með lögunum er þó eigi skýr um þetta atriði.
Ég tel að ekki skipti máli að skilgreina bakgrunn þessarar bótareglu. Orðalag ákvæðisins um föst laun í tiltekinn tíma til þeirra sem ekki eiga kost á starfi hjá ríkinu verður aðeins skilið á þann veg að um lögbundnar skaðabætur sé að ræða fyrir missi starfs hjá ríkinu fyrir það að staða er lögð niður.
2. Hverjir eiga rétt til biðlauna?
Við ákvörðun þess hverjir eiga rétt til biðlauna er nærtækast að líta á efni l. nr. 38/1954 og skoða þau í samhengi við ákvæði l. nr. 97/1974 og 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Samkvæmt ákvæði 14. gr. l. nr. 38/1954 er gert ráð fyrir að allir starfsmenn eigi rétt til biðlauna en starfsaldur ráði lengd biðlaunatímans. Þrátt fyrir að í l. nr. 97/1974 sé ákveðið (3. gr., 2. mgr.) að ráða megi fólk til starfa hjá ríkinu með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti hefur ákvæði 14. gr. l. nr. 38/1954 eigi verið breytt með tilliti til þessa. Því gerir 14. gr. l. nr. 38/1954 ekki greinarmun á skipun, setningu eða ráðningu með þriggja mánaða uppsagnarfresti við ákvörðun réttinda starfsmanna til biðlauna.
Nærtækast er því, að mínu viti, að túlka ákvæði 14. gr. l. nr. 38/1954 eftir orðanna hljóðan að þessu leyti. Fær þessi skoðun stuðning í dómi Hæstaréttar frá 1964, bls. 936.
Af þeim ástæðum ber öllum ríkisstarfsmönnum réttur til sex mánaða eða tólf mánaða biðlauna eftir starfsaldri án tillits til þess hvort þeir séu æviráðnir eða ránir með þriggja mánaða uppsagnarfresti, svo fremi sem staða sé lögð niður í skilningi l. nr. 38/1954.
Vekja ber þó athygli á því að þessi skilningur hefur lítið gildi að því er varðar starfsmenn sem ráðnir eru með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Ætla má að aðdragandi að því að staða er lögð niður sé það langur að unnt sé að koma fram uppsögn.
3. Sambærilegt starf.
Ákvæði 14. gr. l. nr. 38/1954 gerir einungis ráð fyrir að ráðning eða höfnun ráðningar í sambærilegt starf á vegum ríkisins upphefji rétt til biðlauna. Af því leiðir að launuð atvinna hjá einkaaðila hefur eigi áhrif til biðlaunagreiðslna. Í tilviki starfsmanna Síldarverksmiðja ríkisins sýnist mér ótvírætt að allir starfsmenn þeirra eigi rétt til biðlauna í samræmi við starfstíma sinn á vegum stofnunarinnar enda þótt þeir kunni að þiggja starf hjá hinu nýja hlutafélagi ef frumvarpið verður að lögum.
4. Ólögmæt skerðing á stjórnarskrárvernduðum eignarréttindum?
Íslenskir dómstólar hafa verið tregir til að fallast á að lög brjóti í bága við stjórnarskrá Íslands. Ágreiningur hefur einkum risið út af 67. gr. stjórnarskrárinnar og hafa dómstólar yfirleitt túlkað það ákvæði frjálslega þegar deilt hefur verið um lögmæti skattlagningar.
Í stuttu máli má segja að öllu skipti hvort breyting á lögbundnum starfskjörum sé almenn eða sértæk. Ríkisstarfsmenn mega þola launalækkun og versnandi kjör ef breytingin nær til ríkisstarfsmanna almennt án tillits til þess hvar þeir starfa hjá ríkinu, sbr. grunnsjónarmið 18. gr. l. nr. 38/1954.
Hins vegar verður að álíta að óheimilt sé að beina lagabreytingum að fámennum hópi (þröngum hagsmunum) og rýra þannig lögbundin kjör þeirra. Skilgreining þess hvað sé „fámennur hópur“ er afstæð. Það kann að skipta máli hvort sams konar breytingum sé ætlað að taka til margra „fámennra hópa“, svo sem nokkurra ríkisstofnana (Síldarverksmiðja ríkisins, Sementsverksmiðju ríkisins o.s.frv.). Ég hygg þó að breyting á fáum ríkisstofnunum í hlutafélög teljist eigi almenn skerðing í lögfræðilegum skilningi.
Í tilfelli Síldarverksmiðja ríkisins virðist mér sem lögunum sé beint að svo afmörkuðum hópi starfsmanna að meta megi hagsmunina sem sértæka en alls ekki almenna.
Mín skoðun er því sú að 7. gr. frumvarps að lögum um Síldarverksmiðjur ríkisins feli í sér óhæfilega skerðingu á lögbundnum starfskjörum þessara umræddu starfsmanna og sé af þeim ástæðum andstæð ákvæði 67. gr. stjórnarskrár.
Þau starfsréttindi, sem boðuð eru í 7. gr., geta því eigi skoðast sambærileg við gildandi starfskjör skv. l. nr. 38/1954. Hið nýja hlutafélag mun bundið af ákvæðum l. nr. 32 1978, um hlutafélög, og réttindi og skyldur starfsmanna ráðast af almennum kjarasamningum og l. nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur.
Ákvæði 7. gr. um starfskjör starfsmannanna hjá hinu nýja hlutafélagi er jafnframt stefnuyfirlýsing sem eigi er sérstök þörf fyrir í lagatexta. Yfirlýsing af sama tagi gæti allt eins komið frá stjórnendum verksmiðjanna svo að dæmi sé tekið. Gildi um slíka yfirlýsingu almennar reglur vinnuréttar.
Það er skoðun mín að hið virðulega Alþingi eigi ekki að taka afstöðu til þess í frumvarpi til laga hvort réttindi skv. 14. gr. l. nr. 38/1954 séu niður fallin eður ei. Að mínu viti er það dómstóla að skera úr ágreiningi um hvort slík réttindi teljist vera fyrir hendi ef niðurstaðan verður sú að fjármálaráðuneytið kýs að viðurkenna eigi rétt hlutaðeigandi starfsmanna til biðlauna. Ákvæði 7. gr. frumvarpsins i.f. verður að skoða sem fyrirmæli öðru fremur. Samkvæmt viðurkenndum sjónarmiðum um sjálfstæði dómenda eru fyrirmæli Alþingis eða jafnvel skýringar Alþingis á fyrirmælum sínum eigi bindandi fyrir dómstóla. Dómstólum ber skv. 61. gr. stjórnarskrár að fara einungis eftir lögum í víðasta skilningi orðsins, þ.e. ekki aðeins stjórnskipunarlögum heldur almennum lögum, réttarvenju, lögjöfnun o.s.frv.
Með vísan til þessa er rétt að fella síðustu setningu 7. gr. frv. út úr texta þess.
Sé það ætlun Alþingis að taka á réttindum ríkisstarfsmanna, sem lögbundin eru í 14. gr. l. nr. 38/1954, er að mínu áliti eðlilegra og réttara að breyta ákvæði 14. gr. laganna í þá veru enda hefði slík breyting almennt gildi gagnvart ríkisstarfsmönnum.
Virðingarfyllst,
Hróbjartur Jónatansson, hrl.
Fylgiskjal XI.
Bréf sjávarútvegsráðuneytisins
til Helga Bergs:
Skipun nefndar til að endurskoða lög um Síldarverksmiðju ríkisins.
(15. febrúar 1989.)
Hér með eruð þér skipaður formaður nefndar til að endurskoða lög um Síldarverksmiðjur ríkisins. Núgildandi lög um Síldarverksmiðjur ríkisins eru orðin meira en hálfrar aldar gömul og því um margt úrelt. Er nefndinni m.a. falið að meta hvort Síldarverksmiðjurnar séu eðlileg rekstrareining eða hvort æskilegt sé að brjóta núverandi rekstur upp í fleiri sjálfstæðar einingar. Jafnframt er nefndinni falið að meta hvort æskilegt sé að breyta um rekstrarform, t.d. með því að breyta félaginu í hlutafélag og opna þannig fyrir þátttöku fleiri aðila, m.a. heimaaðila, starfsmanna og eigenda loðnuskipa.
Ásamt yður hafa eftirtaldir menn verið skipaðir í nefndina: Gunnar Hilmarsson, Hörður Þórhallsson, Ísak Ólafsson, Jón Ingi Ingvarsson, Þorsteinn Gíslason og Þorvaldur Jóhannsson. Jafnframt hefur Arndísi Steinþórsdóttur, deildarstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu og Þórði Jónssyni, starfsmanni Síldarverksmiðjanna, verið falið að starfa með nefndinni.
Halldór Ásgrímsson.
Árni Kolbeinsson.
Fylgiskjal XII.
Álit nefndar til að endurskoða lög um Síldarverksmiðjur ríkisins.
(11. september 1989.)
(Repró, 8 síður, nýr haus.)
Frumvarp til laga um stofnun hlutafélags
um Síldarverksmiðjur ríkisins.
(Repró, 2 síður,nýr haus, skera burt handskrifaðan texta.)
Bréf Endurskoðunar hf. til Helga Bergs.
(31. ágúst 1989.)
(Repró, 3 síður, nýr haus)