Ferill 528. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 528 . mál.


895. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 34/1988, um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



1. gr.


    Eftirtaldar breytingar verði á 1. málsl. 4. mgr. 1. gr. laganna:
    Í stað orðanna „laga nr. 64/1981“ komi: laga nr. 96/1990.
    Í stað orðanna „sex vikur“ komi: níu vikur.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


     Hinn 16. janúar 1992 var gert samkomulag milli Verkamannasambands Íslands og Vinnuveitendasambands Íslands um að í tengslum við kjarasamninga yrði frá því gengið við stjórnvöld að breyta lögum nr. 34/1988, um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks. Breytingin, sem samið var um að beita sér fyrir, felst í því að lengja þann hámarkstíma á hverju almanaksári sem fyrirtæki í fiskvinnslu eiga rétt á greiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þess að starfsmönnum er haldið á launaskrá þrátt fyrir tímabundna framleiðslustöðvun vegna hráefnisskorts. Lengingin yrði úr sex vikum (30 greiðsludögum) í níu vikur (45 greiðsludaga).
     Hinn 26. apríl sl. var heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra tilkynnt um þetta samkomulag og að umrædd lagabreyting væri nauðsynlegur þáttur í lausn kjarasamninga. Að fengnu mati Atvinnuleysistryggingasjóðs á kostnaði við umrædda lagabreytingu samþykkti ríkisstjórnin tillögu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um að frumvarp hér að lútandi yrði lagt fram og afgreitt á vorþingi eins og gert er ráð fyrir í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins.
    Frumvarp þetta er flutt að beiðni heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.