Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 459 . mál.
926. Breytingartillögur
við frv. til l. um brottfall laga um Skipaútgerð ríkisins, nr. 40/1967.
Frá Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, Jóhanni Ársælssyni,
Stefáni Guðmundssyni og Guðna Ágústssyni.
Ráðherra er heimilt að ráðstafa allt að 50 millj. kr. af því fé sem fæst við sölu á eignum Skipaútgerðar ríkisins til að leysa vanda þeirra byggðarlaga sem við sölu skipanna missa nauðsynlega þjónustu.
Lög þessi öðlast gildi 31. desember 1992. Þó skal 2. gr. taka þegar gildi.