Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 188 . mál.


934. Breytingartillögur



við frv. til l. um brunavarnir og brunamál.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Við 31. gr. bætist ný málsgrein er orðist svo:
                  Heimili og varnarþing Brunamálastofnunar skal vera utan höfuðborgarsvæðisins samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.
    Við 33. gr. bætist ný málsgrein er orðist svo:
                  Ráðherra skal fyrir árslok 1992 ákveða hvar heimili og varnarþing Brunamálastofnunar verður, sbr. 2. mgr. 31. gr., og skal flutningi Brunamálastofnunar vera lokið fyrir árslok 1993.