Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 188 . mál.


939. Breytingartillögur



við frv. til l. um brunavarnir og brunamál.

Frá félagsmálanefnd.



    Við 2. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
         
    
    1. mgr. orðist svo:
                            Brunamálastofnun ríkisins hefur á hendi eftirlit með öllum brunavörnum og brunamálum í landinu.
         
    
    Við 4. mgr. A- til g-liðir orðist svo:
                  a.        Að leiðbeina sveitarstjórnum um allt það er lýtur að brunavörnum, þar á meðal að skilgreina þær brunatæknilegu kröfur sem vatnsveitukerfi sveitarfélaga eiga að uppfylla og hafa eftirlit með að þeim kröfum sé fullnægt.
                  b.        Að yfirfara brunahönnun og uppdrætti af nýbyggingum, viðbótum og meiri háttar breytingum á mannvirkjum sem slökkviliðsstjóri eða byggingarfulltrúi vísar til hennar og stofnunin sjálf kallar eftir til að ganga úr skugga um að lögum og reglugerðum um brunavarnir sé fullnægt. Einnig skal Brunamálastofnun gefa út leiðbeiningar og reglur um brunavarnir og brunahönnun mannvirkja eftir því sem kostur er.
                  c.        Að hafa eftirlit með og samþykkja slökkvibúnað, brunavarnakerfi, byggingarhluta og efni og annað það er snertir brunavarnir.
                  d.        Að hafa forgöngu um að fylgt sé fyrirmælum reglugerðar um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna, þar á meðal slökkviliðsstjóra og eldvarnaeftirlitsmanna.
                  e.        Að hafa æfingar með slökkviliðum svo og að stuðla að aukinni menntun slökkviliðsmanna og eldvarnaeftirlitsmanna, m.a. með því að gangast fyrir reglubundnum námskeiðum.
                  f.        Að beita sér fyrir kynningar- og fræðslustarfsemi fyrir þá er sinna reglubundnu eldvarnaeftirliti; að gangast fyrir ráðstefnum og námskeiðum fyrir hönnuði og aðra tæknimenn og kynna þeim nýjungar á sviði brunavarna; að beita sér fyrir kynningar- og fræðslustarfsemi meðal almennings.
                  g.        Að halda uppi rannsóknastarfsemi á sviði brunavarna.
Við 3. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
         
    
    Í stað orðanna „sameiginlegri tilnefningu Arkitektafélags Íslands, Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: tilnefningu Brunatæknifélags Íslands.
         
    
    Orðin „Stjórnin fer með yfirstjórn stofnunarinnar“ í 1. mgr. falli brott.
         
    
    Í stað 2. mgr. komi tvær nýjar málsgreinar er orðist svo:
                            Stjórn Brunamálastofnunar skal hafa eftirlit með rekstri og starfsemi stofnunarinnar og að fylgt sé ákvæðum laga og reglna sem um stofnunina gilda. Stjórnin skal móta stefnu stofnunarinnar í samráði við brunamálastjóra, m.a. með því að samþykkja starfs- og fjárhagsáætlun fyrir eitt ár í senn. Stjórnin ber ábyrgð gagnvart ráðherra.
                            Ráðherra skipar brunamálastjóra til sex ára í senn að fengnum tillögum stjórnar Brunamálastofnunar. Hann skal veita stofnuninni forstöðu og bera ábyrgð gagnvart stjórninni. Hann ræður starfsmenn Brunamálastofnunar og taka þeir laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Brunamálastjóri skal vera arkitekt, verkfræðingur eða tæknifræðingur eða með aðra sambærilega menntun á háskólastigi og hafa sérþekkingu á brunamálum.
Við 4. gr. 3. mgr. falli brott.
Við 5. gr. 2. og 3. mgr. orðist svo:
                  Í reglugerð skal kveða á um lágmarkskröfur varðandi tækjakost, húsnæði og mannafla slökkviliða svo og vatnsnotkun til slökkvistarfa.
                  Sveitarfélögum ber að sjá um að nægilegt vatn og vatnsþrýstingur sé fyrir hendi til slökkvistarfs og fyrir sérstakan slökkvibúnað í þéttbýli, t.d. úðakerfi í meiri háttar byggingum. Í þeim sveitarfélögum, þar sem vatnsöflun er erfið, er þó heimilt að leita annarra lausna til að tryggja nauðsynlegar brunavarnir.
Við 6. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
         
    
    Í stað orðanna „verksvið hans“ í 4. málsl. fyrri málsgreinar komi: starfsemi slökkviliða og verksvið slökkviliðsstjóra.
         
    
    Orðin „og um sérstaka almannahættu sé að ræða, t.d. af völdum vatnsflóða og fárviðris“ í síðari málsgrein falli brott.
Við 12. gr. Greinin falli brott.
Við 15. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
         
    
    Í stað orðanna „Ef lögreglustjóri býr í sveitarfélaginu skal hann ásamt lögregluliði staðarins“ í 1. málsl. komi: Ef slökkviliðsstjóri óskar þess skal lögregla.
         
    
    Í stað orðsins „lögreglulið“ í 3. málsl. komi: lögregla.
         
    
    Á eftir orðunum „störfum sínum“ í 3. málsl. komi: vernda brunarústir sem rannsaka þarf eða bjarga verðmætum úr.
    Við 18. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
         
    
    Á eftir orðinu „tækja“ í 1. málsl. fyrri málsgreinar komi: eða annars varnings.
         
    
    Í stað orðanna „húss gegn“ í 1. málsl. fyrri málsgreinar komi: mannvirkja og fólks gagnvart.
         
    
    Í stað orðanna „efnið (tækið)“ í 3. málsl. fyrri málsgreinar komi: byggingarefnið, tækið eða annan varning.
         
    
    Í stað orðanna „efnis (tækis) sem“ í síðari málsgrein komi: byggingarefnis, tækis og annars varnings sem stofnunin telur geta valdið hættu á brunatjóni eða.
         
    
    Við greinina bætist ný málsgrein svohljóðandi:
                            Brunamálastofnun skal halda skrá yfir þær viðurkenningar sem veittar eru á grundvelli 1. mgr. svo og það sem bannað er á grundvelli 2. mgr. Brunamálastofnun ber að senda slíka skrá reglulega til slökkviliðsstjóra, byggingarfulltrúa, hönnuða og annarra er þess óska.
    Við 19. gr. 4.–8. mgr. orðist svo:
                  Skylt er að láta fara fram sérstaka brunahönnun á mannvirki þegar um er að ræða nýbyggingu þar sem af fyrirhugaðri starfsemi stafar sérstök eldhætta eða þar sem margir starfa, koma saman eða dveljast, eða þar sem hætta er á stórfelldu eignatjóni í eldsvoða. Skal hún fullnægja þeim kröfum sem gildandi byggingarreglugerð og reglugerð um brunavarnir og brunamál mælir fyrir um.
                  Sé um að ræða mannvirki sem þegar er byggt og í rekstri og þar sem af fyrirhugaðri starfsemi stafar sérstök eldhætta eða þar sem margir starfa, koma saman eða dveljast, eða þar sem hætta er á stórfelldu eignatjóni í eldsvoða skal slökkviliðsstjóri eða byggingarfulltrúi gera úttekt á brunavörnum þess, m.a. með tilliti til viðvörunar- og slökkvibúnaðar, leggja hana fyrir eiganda eða forráðamann og senda síðan til vátryggingafélaga og Brunamálastofnunar. Sé brunavörnum slíks mannvirkis í veigamiklum atriðum ábótavant hafa slökkviliðsstjóri eða byggingarfulltrúi heimild til að fara fram á að gerð sé brunatæknileg hönnun eða úttekt á mannvirkinu.
                  Séu breytingar gerðar á mannvirki, eða starfsemi þess breytt þannig að gerðar eru nýjar eða auknar kröfur um brunavarnir í þeim, er eiganda eða forráðamanni skylt að fá til þess samþykki byggingarnefndar og slökkviliðsstjóra og jafnframt að gera viðeigandi ráðstafanir til að kröfum um brunavarnir sé fullnægt fyrir hið breytta mannvirki eða hina breyttu starfsemi.
                  Brunamálastofnun getur að höfðu samráði við sveitarfélag lagt svo fyrir að í mannvirkjum, sbr. 5. mgr., séu gerðar sérstakar ráðstafanir til brunavarna, t.d. með uppsetningu á sérhæfðum búnaði til viðvörunar- og slökkvistarfs og þjálfun tiltekinna starfsmanna í brunavörnum og slökkvistarfi.
                  Eiganda eða forráðamanni mannvirkis og tryggingafélagi ber að gera viðeigandi ráðstafanir til björgunar verðmæta eftir bruna.
    Við 23. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
         
    
    1. mgr. orðist svo:
                            Brunamálastofnun ríkisins skal sjá um að rannsókn fari fram á orsökum eldsvoða þegar eftir brunatjón. Brunarannsókn þarf ekki að fara fram séu orsakir kunnar eða tjón óverulegt. Rannsóknarlögregla ríkisins eða lögreglustjóri skal sjá um að lögreglurannsókn fari fram sé grunur um að um refsivert athæfi hafi verið að ræða. Haft skal samráð við sérfræðinga Brunamálastofnunar við slíka rannsókn. Rafmagnseftirlit ríkisins skal tilkynnt um slíkar rannsóknir.
         
    
    Í stað orðsins „Lögreglurannsókn“ í 2. mgr. komi: Brunarannsókn.
         
    
    3. mgr. falli brott.
         
    
    4. mgr., er verði 3. mgr., orðist svo:
                            Afrit af gögnum um hverja brunarannsókn skal senda til hlutaðeigandi lögregluyfirvalda, slökkviliðsstjóra og vátryggingafélags þegar rannsókn er lokið.
    Við 24. gr. B- og c-liðir greinarinnar falli brott.
    Við 26. gr. Síðari málsgrein orðist svo:
                  Slökkviliðsstjóra og eftirlitsmönnum hans skal heimill aðgangur að atvinnu- og stofnanahúsnæði og öðrum þeim vinnustöðum þar sem eftirlits er þörf.
Við 27. gr. Í stað 3. og 4. mgr. komi þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Að fengnu samþykki sveitarstjórnar getur slökkviliðsstjóri í samráði við lögreglustjóra ákveðið að framkvæmdar verði nauðsynlegar úrbætur á kostnað eiganda eða forráðamanns eða ákveðið dagsektir uns úr verður bætt. Dagsektir renni til sveitarsjóðs.
                  Ef almannahætta stafar af því að settum reglum um brunavarnir er ekki fylgt ber slökkviliðsstjóra eða lögreglustjóra að tilkynna það tafarlaust hlutaðeigandi sveitarstjórn. Að því loknu skal lögreglustjóri stöðva rekstur í viðkomandi mannvirki og loka því þar til úr hefur verið bætt með fullnægjandi hætti að mati þessara aðila.
                  Ef upp kemur ágreiningur á milli slökkviliðsstjóra og sveitarstjórnar annars vegar og eiganda eða forráðamanns hins vegar um úrræði þau sem mælt er fyrir um í 1. eða 3. mgr. ber að vísa þeim ágreiningi tafarlaust til Brunamálastofnunar sem fellir úrskurð í málinu.
    Við 28. gr. Síðari málsgrein verði svohljóðandi:
                  Telji Brunamálastofnun að sveitarstjórn gegni ekki skyldu sinni samkvæmt lögum þessum ber stofnuninni að undangenginni viðvörun til sveitarstjórnar að tilkynna það félagsmálaráðuneytinu sem veita skal sveitarstjórn áminningu og skora á hana að bæta úr vanrækslunni. Verði sveitarstjórn eigi við áskorun ráðuneytisins innan frests sem það tiltekur getur ráðuneytið með lögsókn krafist dagsekta af sveitarstjórn þar til úr hefur verið bætt. Dagsektir þessar skulu renna í ríkissjóð.