Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 153 . mál.


952. Nefndarálit



um till. til þál. um styrkingu Kolbeinseyjar.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um tillöguna. Umsagnir bárust frá Hafrannsóknastofnun, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Orkustofnun, Rannsóknaráði ríkisins, raunvísindadeild Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands, Vita- og hafnamálaskrifstofunni og Vísindaráði.
    Nefndin telur að hér sé um mikilvægt málefni að ræða sem brýnt er að sinna og vonar að áætlun um styrkingu Kolbeinseyjar geti legið fyrir áður en langt um líður. Nefndin telur hins vegar ekki rétt að binda gerð áætlunarinnar við ákveðna tímafresti, mikilvægara sé að hún sé vel unnin. Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Orðin „næsta sumar“ í fyrri málsgrein tillgr. og orðin „og lögð fyrir þingið til staðfestingar fyrir árslok 1992“ í síðari málsgrein tillgr. falli brott.

Alþingi, 11. maí 1992.



Árni M. Mathiesen,

Sigbjörn Gunnarsson.

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.


form., frsm.



Guðni Ágústsson.

Sturla Böðvarsson.

Árni Johnsen.



Stefán Guðmundsson.

Jóhann Ársælsson.

Sigríður A. Þórðardóttir.