Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 422 . mál.


977. Nefndarálit



um frv. til l. um vernd barna og ungmenna.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund um málið Sigríði Ingvarsdóttur héraðsdómara, Ingibjörgu Rafnar lögfræðing, Drífu Pálsdóttur, deildarstjóra í dómsmálaráðuneytinu, og Þórð Skúlason, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þá studdist nefndin við umsagnir sem menntamálanefnd efri deildar bárust á 113. þingi um frumvarpið, sem og breytingartillögur sem sú nefnd gerði við frumvarpið, en það varð eigi útrætt á því þingi.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Flestar breytingarnar byggjast á breytingartillögum menntamálanefndar frá 113. þingi en í þeim breytingartillögum var í flestum tilvikum ekki um verulegar efnisbreytingar að ræða. Auk þessa gerir nefndin nokkrar viðbótarbreytingar. Í þeim breytingartillögum eru nokkrar efnisbreytingar, sem og lagfæringar á tilvísunum til laga sem tekið hafa breytingum frá því að frumvarpið var samið, þ.e. barnalaga, laga um meðferð einkamála, laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði og aðfararlaga. Þá gerir nefndin tillögu um að gildistöku frumvarpsins verði frestað til 1. janúar 1993.
    Nefndin vill vegna ákvæða 5. mgr. 36. gr. frumvarpsins, þar sem kveðið er á um að barnaverndarnefnd eigi úrlausnarvald um umgengni barna í fóstri við kynforeldra, láta koma fram að hún telur að það ákvæði gildi aðeins um þau tilvik þar sem barnaverndarástæður liggja til grundvallar fóstri.
    Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma.

Alþingi, 16. maí 1992.



Rannveig Guðmundsdóttir,

Eggert Haukdal.

Ingibjörg Pálmadóttir.


form., frsm.



Einar K. Guðfinnsson.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,

Kristinn H. Gunnarsson.


með fyrirvara.



Sigríður A. Þórðardóttir.

Jónas Hallgrímsson.

Sigbjörn Gunnarsson.