Ferill 152. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 152 . mál.


980. Breytingartillaga



við till. til þál. um eflingu Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins sem miðstöðvar fræðslu og rannsókna á sviði sjávarútvegs.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera áætlun um frekari uppbyggingu og eflingu Háskólans á Akureyri og annarra rannsókna- og fræðslustofnana á svæðinu svo að þar verði öflug miðstöð rannsókna- og fræðslustarfsemi á sviði sjávarútvegs.