Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 543 . mál.
1020. Frumvarp til laga
um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
(Lagt fyrir Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991–92.)
1. gr.
Heimilt er að fullgilda fyrir Íslands hönd:
2. gr.
Meginmál EES-samningsins skal hafa lagagildi hér á landi. Sama gildir um ákvæði bókunar 1 við samninginn og ákvæði 9. tölul. VIII. viðauka og g-liðar 1. tölul. XII. viðauka við samninginn.
Ákvæði EES-samningsins, bókunarinnar og viðaukanna, sem vísað er til í 1. mgr., eru prentuð sem fskj. 1–4 með lögum þessum.
3. gr.
Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.
4. gr.
Ráðherra, sem í hlut á, getur, ef sérstök nauðsyn krefur, sett reglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd EES-samningsins.
5. gr.
Ákvæði 1. gr. laga þessara öðlast þegar gildi.
Önnur ákvæði laganna öðlast gildi um leið og EES-samningurinn öðlast gildi að því er Ísland varðar.