Kristín Einarsdóttir
(andsvar)
:
Frú forseti. Ég átta mig ekki enn þá á því hvernig Finnlandsforseti kom inn í þetta mál. Ég hef ekki séð reyndar það lagafrv. sem lagt hefur verið fyrir þingið í Finnlandi en ég sé ekki að þetta séu rök í málinu hér á landi. Það breytir hins vegar ekki neinu. Ég vil minna hæstv. ráðherra á lögfræðiálit sem hann fékk einhvers staðar, mér er ekki alveg kunnugt um hvar, og lét utanrmn. í té og ég hef undir höndum. Þar kemur greinilega fram
að ljóst er að frv. er ekki í endanlegri mynd eins og það er núna þar sem 1. gr. frv. segir mjög greinilega að um ákveðinn samning sé að ræða sem undirritaður var í Óportó, en sá samningur er ekki endanlegi samningurinn þar sem gerðar verða ákveðnar breytingar á honum. Ég þakka hins vegar ráðherranum fyrir að svara þessu því það er nú ekki alltaf sem hann ómakar sig að svara þingmönnum. En ég vildi bara lýsa því yfir að ég tel að gera þurfi breytingar á frv., og á lögunum ef það verður að lögum, ef um breytingar verður að ræða á samningnum sem er nokkuð ljóst þar sem Sviss er ekki lengur aðili að þessum samningi.